Jónína Einarsdóttir, kennd við Götu og síðar Nýborg í Vestmannaeyjum, er 100 ára í dag, föstudaginn 13. nóvember. Hún bjó í Nýborg í 46 ár og starfaði um árabil í Fiskiðjunni, þar sem hún var kölluð Jónína á tíu. Í fjölskyldunni eru pönnukökurnar hennar í minnum hafðar. Jónína býr nú á Hraunbúðum.
Jónína fæddist 13. nóvember 1926 í Pétursborg á Fáskrúðsfirði. Foreldrar hennar, Einar Runólfsson sjómaður og Sigríður Magnúsína Guðmundsdóttir húsfreyja, kynntust í Vestmannaeyjum þegar Einar kom til Eyja til að stunda sjómennsku. Þau bjuggu um skeið á Fáskrúðsfirði en fluttu aftur til Eyja þegar Jónína var sex mánaða. Hún var skírð í Landakirkju 5. júní 1927.
Móðurafi Jónínu, Guðmundur Guðmundsson sjómaður, byggði húsið Ey árið 1911. Þar bjó hann ásamt eiginkonu sinni, Jórunni Ingileif Magnúsdóttur. Amma Jónínu í föðurætt hét einnig Jónína Einarsdóttir og var við nám í kvennaskólanum á Ytriey árið 1892, samkvæmt ættartré fjölskyldunnar.
Í æsku bjó Jónína með fjölskyldu sinni í Nýborg, í Steini við Vesturveg og um skeið í Jómsborg áður en fjölskyldan flutti í Götu við Heiðarveg. Árið 1978 keypti Jónína neðri hæðina í Nýborg, þar sem hún hafði áður búið í tvígang. Þar átti hún heimili í 46 ár, þar til hún flutti á Hraunbúðir árið 2024.
Jónína gekk í Barnaskólann í Vestmannaeyjum og fór að vinna að skólagöngu lokinni. Hún var í vist hjá Auði ljósmóður, Halldóri skólastjóra og síðar hjá Freymóði bæjarfógeta og konu hans. Hún vann í Hraðinu hjá Einari ríka og minntist þess með ánægju að á sumrin fékk starfsfólkið meðal annars að vinna við heyskap. Síðar starfaði hún í netagerðinni Ingólfi og í þvottahúsinu hjá Þuru, þar sem hún vann fram að Heimaeyjargosinu.
Þegar gaus árið 1973 flutti Jónína til Keflavíkur ásamt dóttur sinni, Sigríði Erlu, og dóttursyni sínum, Jóni Óla. Þau bjuggu fyrst hjá Sigurði Einarssyni, hálfbróður Jónínu. Hann útvegaði mæðgunum vinnu í frystihúsinu Stóru milljón, þar sem hann vann sjálfur. Að sögn fjölskyldunnar hefur Jónína oft talað hlýlega um fólkið sitt í Keflavík og hvernig það tók á móti þeim.
Eftir gos hringdi Villa, kunningjakona Jónínu, og bauð henni vinnu í mötuneyti Fiskiðjunnar. Jónína þáði boðið og flutti aftur til Eyja. Síðar færði hún sig úr mötuneytinu yfir í fiskvinnsluna. Í vinnunni tíðkaðist að kalla konurnar eftir númeri borðsins sem þær unnu við. Þar var hún því kölluð Jónína á tíu.
Jónína starfaði áfram hjá Vinnslustöðinni eftir að fyrirtækin sameinuðust og vann þar til hún varð 67 ára.
Báðar dætur Jónínu fæddust í Götu. Sigríður Erla Ólafsdóttir fæddist árið 1945 og býr í Reykjanesbæ. Linda Hannesdóttir fæddist árið 1951 og lést árið 2021. Jónína á sex barnabörn og alls eru afkomendur hennar 36, samkvæmt upplýsingum frá fjölskyldunni. Auk þess á hún þrjú stjúpbarnabörn og sex stjúpbarnabarnabörn.
Fjölskyldan lýsir Jónínu sem vinnusamri, nægjusamri og umhyggjusamri. Í Nýborg tók hún vel á móti gestum og bakaði pönnukökur sem glöddu kynslóðir afkomenda. Þar var jafnan köttur á heimilinu og að sögn fjölskyldunnar var vel dekrað við kettina. Jónína hafði líka gaman af því að ganga með hundana hennar Lindu um bæinn og skoða í búðarglugga á leiðinni.
Á Hraunbúðum unir Jónína sér vel. Að sögn fjölskyldunnar segir hún afkomendum sínum gjarnan hvað henni líði vel þar og hrósar starfsfólkinu.
Eyjafréttir óska Jónínu innilega til hamingju með hundrað ára afmælið.
Byggt á frásögn og ættartré frá fjölskyldu Jónínu og æviskrá Víglundar Þórs Þorsteinssonar á Heimaslóð.

