Jónína Einarsdóttir, elsti íbúi Vestmannaeyja, fagnaði hundrað ára afmæli sínu á Hraunbúðum í dag. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, leit við í afmælinu og tók myndir.
Meðal þeirra sem komu til að óska Jónínu til hamingju voru Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, og Lilja Björg Arngrímsdóttir, rekstrarstjóri Vinnslustöðvarinnar. Jónína starfaði um árabil í Fiskiðjunni og síðar hjá Vinnslustöðinni. Vinnslustöðin rifjar einnig upp starfsár Jónínu í Fiskiðjunni og Vinnslustöðinni í fréttinni Jónína á tíu fagnar 100 ára afmæli.
Fyrr í dag birtu Eyjafréttir umfjöllun um ævi Jónínu, sem er kennd við Götu og síðar Nýborg í Vestmannaeyjum. Jónína Einarsdóttir 100 ára – Eyjafréttir
Myndir Óskars Péturs úr afmælinu má sjá hér að neðan.