Sumarlokanir leikskólanna í Eyjum liggja fyrir
Leikskólinn Kirkjugerði. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Fræðsluráð Vestmannaeyja hefur samþykkt dagsetningar sumarlokunar leikskólanna næstu tvö sumur. Ráðið ætlar jafnframt að kanna hvort auka megi sveigjanleika í fyrirkomulaginu árið 2028.

  • 2027: Lokað 8. júlí til og með 10. ágúst. Leikskólarnir opna aftur kl. 10 miðvikudaginn 11. ágúst.
  • 2028: Lokað 12. júlí til og með 14. ágúst. Leikskólarnir opna aftur kl. 10 þriðjudaginn 15. ágúst.

Fram kemur í tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar að með því að ákveða dagsetningarnar tímanlega vilji fræðsluráð auðvelda fjölskyldum og starfsfólki að skipuleggja sumarið.

Sveigjanleiki til skoðunar

Fræðsluráð samþykkti að leita umsagnar leikskólastjórnenda, kanna reynslu af fyrra fyrirkomulagi og afla kostnaðarmats áður en það tekur afstöðu til breytinga.

„Með því að ákveða dagsetningar tímanlega auðveldum við fjölskyldum að skipuleggja sumarleyfi sín. Jafnframt er mikilvægt að vera opin fyrir nýjum leiðum sem geta aukið sveigjanleika þjónustunnar í framtíðinni,“ segir Aníta Jóhannsdóttir, formaður fræðsluráðs, í tilkynningunni.

Ákvörðunin um sumarlokun 2027 stendur. Ráðið getur endurskoðað fyrirkomulagið árið 2028 ef fagleg og fjárhagsleg skoðun gefur tilefni til.

Nýjustu fréttir

Sumarlokanir leikskólanna í Eyjum liggja fyrir
Futsal mót knattspyrnudeildar ÍBV fer fram á morgun
Fyrsti kjarasamningur sjómanna á smábátum frá 2012
Líkn færir sjúkradeild HSU í Eyjum tvö ný tæki
Vont veður hrakti Eyjarnar af Gerpisflakinu
Handverks- og vörumarkaður í Höllinni
Steinunn sló botninn í Safnahelgina með húmor og frásagnargleði
Truflanir hjá Microsoft hafa áhrif
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.