Futsal mót knattspyrnudeildar ÍBV fer fram á morgun
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Knattspyrnudeild ÍBV stendur fyrir futsal móti í Íþróttamiðstöðinni á morgun, laugardag. Mótið er ætlað fyrirtækjum og vinahópum og fara leikirnir fram í sal 1 og 2. Mótið hefst um hádegisbil og dagskráin heldur áfram fram á kvöld með lokahófi í Týsheimili. 

Fyrstu leikir mótsins hefjast klukkan 12:15 og verður keppt fram eftir degi. Stefnt er að því að ljúka mótinu um klukkan 18:00. Frá klukkan 18:00 verður frítt í sund fyrir alla þátttakendur mótsins.

Klukkan 20:00 hefst lokahóf í Týsheimili þar sem boðið verður upp á pub quiz og tónlist frá Túbador. Opið hús verður í Týsheimili og eru allir hjartanlega velkomnir.

Það er því fjölbreytt dagskrá fram undan á vegum knattspyrnudeildar ÍBV á morgun, bæði fyrir þátttakendur mótsins og aðra gesti.

Mynd/ÍBV

Nýjustu fréttir

Futsal mót knattspyrnudeildar ÍBV fer fram á morgun
Fyrsti kjarasamningur sjómanna á smábátum frá 2012
Líkn færir sjúkradeild HSU í Eyjum tvö ný tæki
Vont veður hrakti Eyjarnar af Gerpisflakinu
Handverks- og vörumarkaður í Höllinni
Steinunn sló botninn í Safnahelgina með húmor og frásagnargleði
Truflanir hjá Microsoft hafa áhrif
Jónína Einarsdóttir 100 ára
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.