Víðtækar truflanir hafa verið á þjónustu Microsoft frá því í gær og hafa þær meðal annars haft áhrif á tölvupóstþjónustuna Outlook og aðra þjónustu Microsoft 365. Notendur víða um heim hafa átt í erfiðleikum með að nálgast tölvupóst, senda og taka á móti skilaboðum.
Microsoft hefur unnið að því að koma þjónustunni í eðlilegt horf. Samkvæmt upplýsingum fyrirtækisins tengjast vandamálin meðal annars bilunum í netþjónum og miklu álagi á kerfi þess.
Áhrif á þjónustu Herjólfs
Truflanirnar hafa haft áhrif á tölvupóstþjónustu Herjólfs. Í tilkynningu frá Herjólfi kemur fram að tafir geti orðið á svörum við fyrirspurnum viðskiptavina á meðan ástandið varir. Herjólfur bendir þeim sem þurfa að hafa samband á að hægt sé að senda skilaboð í gegnum Messenger á Facebook á meðan truflanirnar standa yfir.
Einnig áhrif á tölvupóst Eyjafrétta
Truflanirnar hafa einnig haft áhrif á tölvupóstkerfi Eyjafrétta og liggja netföngin sem enda á @eyjafrettir.is niðri. Á meðan truflanirnar vara er hægt að hafa samband við ritstjóra á tryggvi@eyjar.net.