Afhentu nýtt hljóðkerfi í Landakirkju

Á sunnudaginn, 1. desember síðast liðin, fyrsta sunnudag í aðventu. Veitti Ofanleitissókn nýju hljóð- og myndkerfi kirkjunnar formlega viðtöku, en kerfið er gjöf til sóknarinnar frá Kvenfélagi Landakirkju. Kerfið er hið glæsilegasta og mikil bylting frá því sem áður var. Skipt var um allan búnað bæði í kirkju og safnaðarheimili og nú má streyma athöfnum […]
2. desember – Birgir Nielsen | Að lifa í von

Að lifa í von er jóladagatal Landakirkju 2019. Í öðrum glugganum er Birgir Nielsen. (meira…)
1. desember – Helga Björk Ólafsdóttir | Að lifa í von

Að lifa í von er jóladagatal Landakirkju 2019. Í fyrsta glugganum er Helga Björk Ólafsdóttir. (meira…)
Tekið við gjöf Kvenfélagsins á fyrsta sunnudegi í aðventu

Í dag sunnudaginn, 1. desember nk., fyrsta sunnudag í aðventu. Veitir Ofanleitissókn nýju hljóð- og myndkerfi kirkjunnar formlega viðtöku, en kerfið er gjöf til sóknarinnar frá Kvenfélagi Landakirkju. Kerfið er hið glæsilegasta og mikil bylting frá því sem áður var. Skipt var um allan búnað bæði í kirkju og safnaðarheimili og nú má streyma athöfnum […]
Að lifa í von – Kynning á jóladagatali Landakirkju 2019

Á aðventu síðustu jóla bryddaði Landakirkja upp á þeirri nýbreyttni að vera með jóladagatal undir yfirskriftinni Þakkarorð á jólum. Þetta þótt einstaklega vel heppnað og því ákveðið að gera þetta að nýju í ár. Í ár er yfirskriftin “að lifa í von.” Daglega í desember, fram að jólum, mun birtast myndbandsinnslag þar sem Vestmannaeyingur talar frá […]
Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa á sunnudag

Sunnudaginn 17. nóvember er minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa. Af því tilefni verður Guðsþjónusta dagsins í Landakirkju helguð þessu málefni. Fólk er hvatt til að leiða hugann að fórnfúsu og óeigingjörnu starfi viðbragðsaðila og þeirri ábyrgð sem við öll berum í umferðinni. Beðið verður sérstaklega fyrir fórnarlömbum umferðarslysa og við munum hlusta á frásögn fulltrúa viðbragðsaðila […]
Jól í skókassa – Aðeins vika eftir af verkefninu í Eyjum

Jól í skókassa hefur farið ágætlega af stað hér í Vestmannaeyjum og fjölmargir virkir í verkefninu. Síðasti skiladagur verkefnisins er föstudaginn 1. nóvember og því aðeins rétt rúm vika til stefnu fyrir þá sem ætla að vera með. Koma má með kassana í Landakirkju sem er að jafnaði opin milli 9 og 15 virka daga […]
Vinir í bata – 12-spora hópastarf hefst í september

Boðið verður upp á 12-spora hópastarf í Landakirkju í vetur. Við köllum okkur vini í bata og vinnuna köllum við Andlegt ferðalag. Þetta er fyrir alla sem vilja vinna með tilfinningar sínar af einlægni og kynnast sjálfum sér og Guði betur. Kynningarfundur verður mánudaginn 16. september kl. 18:30 í Safnaðarheimili Landakirkju. Fyrstu þrír fundirnir eru opnir öllum til þess að […]
Samkirkjuleg Guðsþjónusta í Hvítasunnukirkjunni á sunnudag

Næstkomandi sunnudag kl. 13:00 munu Hvítasunnukirkjan og Landakirkja hafa sameiginlega og samkirkjulega Guðsþjónustu í húsnæði Hvítasunnukirkjunnar. Af þeim sökum verður engin Guðsþjónusta í Landakirkju þann daginn. Hugmyndin er að hafa samkomu í hvítasunnukirkjunni núna á sunnudag þar sem prestar, tónlistarfólk og söfnuðir beggja kirkna sameinast í samkirkjulegri samkomu og gleðjast í trúnni með trúsystkinum sínum. […]
Tölvuleikjamessa á æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar

Landakirkja býður til sérstakrar tölvuleikjamessu sunnudagskvöldið 3. mars nk. kl. 20:00. Þemað eins og nafnið gefur til kynna eru tölvuleikir og tölvuleikjatónlist og mun Kór Landakirkju, Karlakór Vestmannaeyja, Sæþór Vídó og Thelma Lind Þórarinsdóttir flytja tónlist úr tölvuleikjum fyrir viðstadda undir stjórn Kitty Kovács organista. Eins og vaninn er mun fulltrúi yngri kynslóðarinnar predika og […]