Niðurskurðarhnífurinn er kominn á loft hjá ríkisvaldinu og ljóst að draga á saman í Vestmannaeyjum eins og víðast hvar á landsbyggðinni. Í síðustu viku bárust þær fréttir að frá og með næstu áramótum verði landið eitt skattaumdæmi. Áfram verður starfsemi á fimm stöðum úti á landi en Vestmannaeyjar eru ekki þar á meðal.