Yngvi tryggði ÍBV sigur á lokamínútunum

Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV sagði í samtali við www.sudurland.is að leikurinn hefði borið þess merki að bæði lið hefðu leikið marga leiki síðustu vikur. �?Við lögðum upp með það að liggja til baka, bæði til að verjast betur og til að hreinlega hvíla menn aðeins. �?essi leikur var ekki skemmtilegur fyrir áhorfendur og í sannleika […]

Björgvin undir stýri á gamla Ford

Landsmót Fornbílaklúbbsins er árviss viðburður á Selfossi og litar bæjarlífið alltaf skemmtilegum tónum. Mótinu lýkur á sunnudag með öðrum hópakstri. (meira…)

Enn á gjörgæsludeild eftir vélhjólaslys

Maðurinn féll af hjóli sínu á Höfðavegi í Vestmannaeyjum þar sem hann var með hópi vélhjólamanna og runnu bæði hann og hjólið á vegrið. Hann var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur aðfaranótt miðvikudags. �?etta var annað alvarlega véhjólaslysið á rúmri viku. �?kumaður annars vélhjóls féll af því þegar hann reyndi að stinga lögregluna af á […]

Dæmdur fyrir innbrotsþjófnað og fíkniefnavörslu

Í desember á síðasta ári braust drengurinn, í félagi við annan mann, inn í Vallaskóla á Selfossi og stal þaðan verðmætum tölvubúnaði. Að því búnu brutust þeir inn í félagsheimilið Selið en flúðu tómhentur eftir að þjófavarnakerfi hússins fór í gang. �?á var drengurinn skömmu síðar handtekinn með hass í neysluskammti við húsleit á heimili […]

Ekki hægt að sanna smyglið

Lögregla fékk tilkynningu um að kona væri á leið frá fangelsinu á Litla-Hrauni. Konan hafði ætlað að heimsækja fanga en fíkniefnahundur gaf til kynna að hugsanlegt væri að hún hefði fíkniefni meðferðis. Konan neitaði starfsmönnum fangelsisins um að leita á sér og yfirgaf síðan fangelsið. Lögreglan stöðvaði bíl konunnar og við leit í fannst í […]

Fyrsti sigur KFS á heimavelli kom í gærkvöld

Steingrímur Jóhannesson skoraði fyrstu tvö mörk leiksins og kom Eyjamönnum yfir í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var 2:0. Bróðir hans, Sæþór bætti svo við þriðja markinu áður en Gróttumenn náðu að skora, úr einu af fáum færum sínum í leiknum. KFS er í öðru sæti A-riðils, með tíu stig eftir fimm leiki en […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.