Eyjamenn sækja Stjörnuna heim í kvöld

Í kvöld klukkan 19.00 leika Eyjamenn fyrsta leik sinn eftir Þjóðhátíð þegar þeir sækja Stjörnuna heim í Garðabæinn. Eyjamenn hafa verið að finna taktinn að nýju eftir slakt gengi í fyrri hluta júlí. ÍBV er sem stendur í fimmta sæti deildarinnar, einu sæti fyrir ofan Stjörnuna en ef Eyjamenn ætla að halda í við toppliðin […]

�?kumaður náði að forða sér áður en hann fór á bólakaf

Björgunarsveitin Kyndill á Klaustri, missti bíl sinn við Langasjó, Fjallabaksleið nyrðri, en verið var að setja bát á flot til að aðstoða ferðamenn yfir vatnið. Vildi ekki betur til en að bílinn sökk í sand en ökumaður náði að forða sér úr bílnum sem fór á bólakaf. (meira…)

Tvö flugslys urðu í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli

Tvö flugslys urðu í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli í síðustu viku. Annað við Múlakot en þar hlekktist tveggja hreyfla flugvél á. Engin slys urðu á mönnum. Hitt slysið var í Nýadal á Sprengisandsleið en þar var um erlenda flugvél að ræða með fjórum mönnum af erlendu bergi brotnu. (meira…)

Tíu umferðaróhöpp voru tilkynnt í vikunni

Sérstakt umferðareftirlit hefur verið í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli og heldur hefur slegið á hraðan þessa vikuna. Tíu umferðaróhöpp voru tilkynnt í vikunni, en nokkuð er um að útlendingar missi stjórn á ökutækjum sínum sem flest eru bílaleigubílar og velti þeim. (meira…)

Mikið að gera hjá mörgum við undirbúning í �?orlákshöfn

Heilmikið hefur verið að gera hjá mörgum aðilum í bænum við undirbúning Hafnardaga. Margar sýningar verða settar upp þar sem fólk getur fræðst og rifað upp gamla daga. Áhugamenn vinna að uppsetningu sýningar í gamla mötuneytissal Meitilsins. Þetta kemur fram á fréttavef sveitarfélagsins. (meira…)

Keppnin hafin í íslensku sumarveðri

Keppni í sveitakeppni í golfi, 1. deild hófst á golfvellinum í Vestmannaeyjum í morgun. Keppnin hefst í alíslensku sumarveðri, rigningu og vindi en spáin er reyndar mjög góð fyrir helgina. Golfklúbbur Vestmannaeyja fer vel af stað en þeir Þorsteinn Hallgrímsson og Rúnar Karlsson unnu fyrstu holuna gegn Golfklúbbi Suðurnesja. Mótinu lýkur svo rétt eftir hádegi […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.