Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi heldur aðalfund sinn laugardaginn 17. nóvember n.k. Fundurinn fer fram í félagsheimilinu í Sandgerði klukkan 16.00. Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf. Gestir fundarins verða Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Þorgerður Katrín Gunnarsóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Þá munu þingmenn Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu taka þátt í fundinum.   Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi […]

Heildaraflinn eykst um átta þúsund tonn milli ára

Heildarafli íslenskra skipa í október var rúm 98 þúsund tonn en það er átta þúsund tonnum meiri afli en var í október í fyrra samkvæmt tölum Fiskistofu. Fram kemur á vef stofnunarinnar að aukinn afli skýrist af tæplega 15 þúsund tonna aukningu á síldarafla milli ára. Á móti kemur minni afli í þorski og kolmunna […]

Eldgos hefst í Surtsey

Surtsey fór að gjósa þennan dag fyrir 44 árum síðan. Vart varð við gosið klukkan rúmlega sjö að morgni þegar það braust upp út yfirborði sjávar skammt frá þar sem fiskibáturinn Ísleifur II frá Vestmannaeyjum var staddur. Skipverjar mældu sjávarhita í hálfrar mílu fjárlægð og reyndist hitastigið vera nálægt tíu gráðum. Gosið magnaðist hratt og […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.