Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi heldur aðalfund sinn laugardaginn 17. nóvember n.k. Fundurinn fer fram í félagsheimilinu í Sandgerði klukkan 16.00.

Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf.

Gestir fundarins verða Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Þorgerður Katrín Gunnarsóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Þá munu þingmenn Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu taka þátt í fundinum.

 

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi mynda 33 félög sjálfstæðismanna og fulltrúaráð í kjördæminu.

Suðurkjördæmi er landfræðilega stærsta kjördæmi landsins og í því eru rúmlega þrjátíu þúsund kjósendur í 20 sveitarfélögum. Það nær frá sveitarfélaginu Garði í vestri til Hornarfjarðar í austri.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk 9120 atkvæði í alþingiskosningunum í vor, eða 36% atkvæða.

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi eru Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, Kjartan Ólafsson, Árni Johnsen og Björk Guðjónsdóttir.

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi heldur úti vefsíðunni http://www.xdsudur.is/. Þar er hægt að nálgast upplýsingar um starfsemi flokksins í kjördæminu.

Stjórn Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Nýjustu fréttir

KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Bleikur blær og ABBA-tónar hjá Krabbavörn
Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.