Stefnumót við safneign

Stefnumót við safneign – listir, leikur og lærdómur, er heiti nýrrar sýningar í Listasafni Árnesinga sem opnar laugardaginn 24. nóvember nk. kl. 15. Á sýningunni eru valin verk úr eigu safnsins að mestu leyti úr gjöf Bjarnveigar Bjarnadóttur og sona. Flest verkin eru unnin á fyrri hluta og um miðbik síðustu aldar og eru höfundar […]

Rauði barinn á laugardögum

Alla laugardaga fram að jólum verður lifandi tónlist í Rauða húsinu á Eyrarbakka. Spilað verður frá klukkan 23:00 í kjallara hússins og Rauði barinn opinn. Selfyssingarnir Leifur og Maggi troða upp þessa helgina. (meira…)

Fjórir nemendur úr eðlisfræði- og efnafræðiskorum Háskóla Íslands hljóta viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur í eðlis- og efnafræði

Fjórir nemendur, sem útskrifast hafa úr eðlis- og efnafræðiskorum raunvísindadeildar Háskóla Íslands hlutu í dag verðlaun úr Verðlaunasjóði Guðmundar P. Bjarnasonar frá Akranesi. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi námsárangur árin 2006 og 2007. Tilkynnt var um viðurkenningarnar við hátíðlega athöfn í Skólabæ. Verðlaunaféð nemur í heild sinni sautjánhundruð þúsund krónum en hver nemandi fær viðurkenningu […]

Breyttist eitthvað?

Sá á eyjafréttum að búið væri að afhenda Elliða bæjarstjóra undirskriftalistann. Það voru 434 sem skrifuðu undir. Ég spyr mig hvort þetta muni eitthvað breyta afstöðu bæjaryfirvalda til málsins? Ég leyfi mér að efast um það. (meira…)

Handafls aðgerðir í sjávarútvegi kosta íbúa Suðurkjördæmis eitt þúsund og eitt hundrað milljónir

Alþingismenn í suðurkjördæmi eru gott og vinnusamt fólk.  Meðal þeirra verka sem þeirra bíða er að ráðast til atlögu við þá miklu mismunun sem við er að glíma innan sjávarútvegsins.  Suðurland fer illa út úr ofurskattlagningu á sjávarútveginn og við því þarf að bregðast.  Niðurskurður á þorskkvóta hefur gert þetta að enn þarfara verkefni en […]

Barnaheimur 2008

Dagana 29. febrúar – 2. mars næstkomandi verður sýning í Vetrargarði Smáralindar sem ber yfirskriftina Barnaheimur 2008 “allt fyrir og um  barnið”og mun sú sýning marka nýtt upphaf.Þar mun fólki, fjölskyldufólki gefast kostur á að kynnast öllum þeim > þáttum sem viðkemur barninu & barnauppeldi í sinni nærtækustu mynd. Þarna verða öll helstu fyrirtæki á […]

Vestmannaeyjabær auglýsir eftir Verkefnastjóra

Vegna aukinna verkefna óskar Vestmannaeyjabær eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan einstakling í starf verkefnastjóra til tímabundinna starfa í eitt ár. Verkefnastjóri heyrir undir framkvæmdastjóra Umhverfis- og framkvæmdasviðs og mun í starfi sínu koma að fjölbreyttum og krefjandi framkvæmdum og viðhaldsverkefnum sveitarfélagsins.Menntunar- og hæfniskröfur: Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. verk- eða tæknifræðimenntun Þekking og […]

Vestmannaeyjabær auglýsir eftir Verkefnastjóra

Vegna aukinna verkefna óskar Vestmannaeyjabær eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan einstakling í starf verkefnastjóra til tímabundinna starfa í eitt ár. Verkefnastjóri heyrir undir framkvæmdastjóra Umhverfis- og framkvæmdasviðs og mun í starfi sínu koma að fjölbreyttum og krefjandi framkvæmdum og viðhaldsverkefnum sveitarfélagsins.Menntunar- og hæfniskröfur: Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. verk- eða tæknifræðimenntun Þekking og […]

Styttri jól í eyjum

Jólin í Vestmannaeyjum verða degi styttri en jól annarra landsmanna. Bæjaryfirvöld og ÍBV hafa ákveðið að færa þrettándann yfir á laugardaginn 5. janúar, þar sem heppilegra er að halda hátíð þann dag.Þessi háttur verður hafður á næstu tvö árin. Það þýðir að þrettándinn verður laugardaginn 3. janúar að ári. Jólin styttast því um þrjá daga […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.