Best skreyttu húsin í Árborg
Best skreyttu húsin í Árborg hafa verið valin og voru eigendur þeirra verðlaunaðir sl. þriðjudag. Fallegustu heimilin eru við Laufhaga 6 á Selfossi, hjá Guðmundi Guðmundssyni og Lilju Kristinsdóttur og Tryggvagötu 3 á Selfossi hjá þeim Þorsteini og Fjólu sem eru á myndinni að ofan. Hárgreiðslustofan Mensý við Austurveg 29 var best skreytta fyrirtækið annað […]
�?jóðfræðinám útilokað án frekari styrkja

Verkefnastjóri Þjóðfræðimiðstöðvarinnar á Stokkseyri er vonsvikinn með úthlutun á fjárlögum ríkisins. Með þeim sex milljónum króna sem miðstöðin fær, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu, verður ekki hægt að koma á laggirnar þjóðfræðinámi eins og til stóð. (meira…)
Dagforeldra-greiðslur hækkaðar
Samkvæmt nýsamþykktri fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborg fyrir árið 2008 verða niðurgreiðslur vegna vistunar barna hjá dagforeldrum hækkaðar. (meira…)
Viðburðaríkt 100 ára afmælisár framundan

Aðalfundur Umf. Laugdæla var haldinn 12. desember sl. í grunnskólanum að Laugarvatni. Frestast hefur allt árið að halda fundinn sökum veikinda bókara félagsins sem unnið hefur að afstemmingum reikninga aftur til 2003. Á fundinum voru því lagðir fyrir og samþykktir ársreikningar áranna 2003, 2004, 2005 og 2006. Vandamálin lágu í bókun og afsetmmingu reikninga ársins […]
Jólatrésskemmtun á Eyrarbakka

Kvenfélagið á Eyrarbakka heldur sína árlegu Jólatrésskemtun laugardaginn 29. desember frá kl 11.00 til 13.00. (meira…)
Friðarljósið gefið í Kotstrandarkirkju
Bænastund verður í Kotstrandarkirkju kl. 13:00 á aðfangadag. Sr. Jón Ragnarsson, minnist látinna og biður fyrir komandi jólum og friði mönnum til handa. Að bænastundinni lokinni munu skátar gefa Friðarljósið frá Betlehem þeim sem það vilja þiggja til að tendra við leiði í kirkjugarðinum. (meira…)
Kvartett Kristjönu Stefáns á Riverside í Hótel Selfoss

Hinir árlegu jólatónleikar Kvartetts Kristjönu Stefáns verða haldinir á Riverside á Hótel Selfoss föstudaginn 21.desember. (meira…)
Samstarfsmenn vígslubiskups segja upp vegna samstarfsörðugleika

Hilmar Örn Agnarsson, organisti í Skáholti, er farinn þriggja mánaða veikindafrí vegna andlegs álags sem hann segir tilkomið vegna samstarfsörðugleika við stjórnir Skáholtsstaðar og Reykholtsskóla. (meira…)
Skáldin í Sunnlenska bókakaffinu
Sunnlenska bókakaffið á Selfossi verður með upplestur og bókakynningar á fimmtudag og föstudag. Á fimmtudagskvöldið mæta m.a. skáldin Þráinn Berthelson, Valur Gunnarsson og Pétur Gunnarsson og kynna nýjar bækur sínar. Þráinn sendir nú frá sér frábæra spennusögu, Englar dauðans, Valur Konung norðursins en frá Pétri kemur út bók um líf Þórbergs Þórðarsonar, ÞÞ í fátæktarlandi. […]
Ungmennaráð stofnað
Sérstakt ungmennaráð verður stofnað í Sveitarfélaginu Árborg. Ráðið verður bæjarstjórn Árborgar til ráðgjafar í málefnum ungs fólks í sveitarfélaginu. (meira…)