Eyjamenn komnir í fyrsta sæti B-riðils

Körfuknattleikslið ÍBV tók í dag á móti Mostra í B-riðli 2. deildar en Mostri, sem er frá Stykkishólmi, var í efsta sæti fyrir leikinn, tveimur stigum á undan ÍBV. Eyjamenn voru hins vegar mun sterkari aðilinn í leiknum, náðu þægilegu forskoti í 2. leikhluta þegar liðið lék stífa pressuvörn sem skilaði liðinu auðveldum hraðaupphlaupskörfum sem […]
Sverrir Stormsker verður heiðursgestur á herrakvöldi ÍBV

Það er orðin löng hefð fyrir herrakvöldi handknattleiksáhugamanna innan ÍBV. Fyrr á árum var það haldið um borði í Herjólfi. En eftir að skipið fór að sigla tvær ferðir alla daga var það ekki lengur hægt. Síðan hefur það verið í Höllinni. Og svo verður nú. Að þessu sinni verður það haldið laugardaginn 8. mars. […]
Guðmundur Steingrímsson og Guðni Ágústsson kváðust á í þingveislu í gærkvöldi
Þingveisla var haldin í gærkvöldi en þar er þingmönnum bannað að taka til máls nema í bundnu máli. Þetta var fyrsta þingveisla nýs kjörtímabil og kom í ljós að áhyggjur af því að kveðskapur þingmanna væri verri en áður eru ástæðulausar. Það er ekki einu sinni sjónarmunur á því sem kveðið var í gær og […]
�?órarinn Siggeirsson nýr verksmiðjustjóri
Nú um mánaðamótin tekur Þórarinn Siggeirsson á Baugsstöðum í Stokkseyrarhreppi hinum forna við störfum sem verksmiðjustjóri í Kjötmjölsverksmiðjunni í Flóahreppi. Þórarinn er menntaður rafvirki og vélfræðingur frá Vélskóla Íslands með verktíma frá Vélsmiðju Hafnarfjarðar. Þórarinn hefur fjölbreyttan og langan feril sem vélstjóri á ýmsum skipum hér við land. (meira…)
Bjórinn Skjálfti kemur á markað
NÝR íslenskur bjór, Skjálfti, verður settur á markað í dag, 1. mars, á sjálfan bjórdaginn, en þá eru 19 ár síðan sala bjórs var aftur leyfð á Íslandi eftir áratuga bann. Skjálfti verður seldur í tveimur vínbúðum ÁTVR í Reykjavík til að byrja með og einnig verður hann sérpantaður í ÁTVR á Selfossi og í […]
Hljómsveitatónleikar í Sunnulækjarskóla á Selfossi
Í dag laugardaginn 1. mars verða hljómsveitatónleikar tónlistarskólans haldnir í Sunnulækjarskóla, Selfossi. Að þessu sinni verða tvennir tónleikar: (meira…)