Skáksetur til heiðurs Fischer og Friðriki

Guðni Ágústsson, alþingismaður og formaður Framsóknarflokksins, hyggst leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um stofnun skákseturs sem helgað verði skákafrekum stórmeistaranna Bobby Fischers og Friðriks Ólafssonar. Alþingismenn úr öllum stjórnmálaflokkum á Alþingi verða meðflutningsmenn tillögunnar. (meira…)

Sveit Grunnskóla Vestmannaeyja í efsta sæti eftir fyrri keppnisdag

Íslandsmót barnaskólasveita í skák hófst í Salaskóla í Kópavogi í dag. Tefldar eru níu umferðir eftir Monradkerfi og er umhugsunartími 20 mínútur á skák fyrir hvern keppenda. Tefldar voru fimm umferðir í dag og verða tefldar fjórar á morgun en sveit Grunnskóla Vestmannaeyja er í efsta sæti eftir fyrri daginn. (meira…)

ÍBV tapaði fyrir HK með átta mörkum

HK byrjaði betur í leiknum og leiddi 16-11 í hálfleik. ÍBV náði að minnka muninn í tvö mörk í seinni hálfleik en HK gaf þá í og náði níu marka forystu og lokatölur leiksins urðu síðan 35-27 eins og áður sagði. Hjá HK var það liðsheildin sem skóp þennan sigur en hjá ÍBV bar mest […]

Frábært veður á skíðasvæðunum

Frábært veður er nú í Bljáfjöllum og í Skálafelli og færið með besta móti. Mikið er af nýföllnum snjó og er sólskin og logn. Þar skemmta ungir og aldnir sér nú við skíða og brettarennsli í blíðunni. Opið er í Bláfjöllum frá klukkan 10 til 18 en þar er nánast logn og frost þrjár gráður. […]

Herrakvöld ÍBV í kvöld

Herrakvöld ÍBV verður í Höllinni í kvöld. Nokkuð löng hefð er fyrir Herrakvöldi á vegum handboltadeildar en kvöldið hefur verið vel sótt undanfarin ár. „Þátttaka hefur alltaf verið góð og lengi vel vorum við með þetta um borð í Herjólfi en Herrakvöldið sprengdi hann utan af sér og við fluttum í Höllina,“ sagði Viktor Ragnarsson, […]

Hlaut fjögurra ára fangelsi fyrir hrottafengna nauðgun

Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær pólskan karlmann í 4 ára fangelsi fyrir nauðgun í Vestmannaeyjum í september sl. Ákærði heitir Andrzej Kisiel og var sakfelldur fyrir að nauðga konu á víðavangi eftir dansleik. Konunni tókst að komast á lögreglustöð illa til reika og hófst rannsókn á málinu sem leiddi til ákæru ríkissaksóknara. Dómurinn er með […]

Gönguferðir í Skotlandi fyrir hresst fólk á öllum aldri

Að ganga er talin vera besta hreyfing fyrir líkamann, ekki eingöngu þar sem reynir á flesta vöðva líkamans heldur einnig fyrir sálina. Margar góðar ákvarðanir eru einmitt teknar í slíkum ferðum ,vandamál leyst og fólk gefur sér tíma til að láta hugann reika og spá í fram­tíðina og þá aðallega á já­kvæðum nótum um að […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.