ST�?RKOSTLEGUR ROKKS�?NGLEIKUR
Leikfélag NFSu er nú að leggja lokahönd á stórglæsilegan rokksöngleik sem frumsýndur verður þann 27. mars nk. Söngleikurinn sem heitir TIL SÖLU verður sýndur í ófullgerðum menningarsal Hótel Selfoss. Þetta er stærsta og viðamesta verkefni sem félagið hefur nokkru sinni lagt í og er sannkallaður atvinnumannsbragur á sýningunni. (meira…)
Samstaða fyrir bí

Ekki tókst að stofna sameiginlegan hafnarsjóð um Landeyjahöfn í eigu Vestmannaeyjabæjar og Rangárþings Eystra en búið var að semja um að höfnin yrði opinbert hlutafélag. Þar sem samningar tókust ekki hefur framkvæmda- og hafnarráð lýst yfir fullum vilja Vestmannaeyjahafnar til að annast rekstur Landeyjahafnar og gera samkomulag við samgönguráðuneytið um Landeyjahöfn sem verður landshöfn í […]
�?rjár milljónir sjöhundruð og sextíu þúsund koma til Íþróttabandalags Vestmannaeyja

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ undirrituðu í gær samning þar sem Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands er falin umsjón og umsýsla með Ferðasjóði íþróttafélaga. Hlutur aðildarfélaga Íþróttabandalags Vestmannaeyja er 12,53% eða 3.761.735,- (meira…)
Litla-Hraun á Eyrarbakka stækkað um helming
Klefum í fangelsinu á Litla-Hrauni verður fjölgað um 50 – 60 og framundan er mikil uppbygging á svæðinu. Horfið verður frá fangelsisuppbyggingu í Reykjavík að öðru leyti en því að gæsluvarðhald og fangamóttaka verður á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kom fram á fundi Björn Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, með starfsfólki Litla-Hrauns á mánudag. (meira…)
REC Group til �?lfuss
Það er norska fyrirtækið REC Group sem hyggur á uppbyggingu kísilvinnslu í Þorlákshöfn í sveitarfélaginu Ölfusi. Fyrir þessu hafa 24 stundir staðfestar heimildir. Höfuðstöðvar REC Group eru staðsettar í Ósló í Noregi og félagið er með starfsemi þar í landi, í Svíþjóð og í Bandaríkjunum. (meira…)
Vélsleðinn sagði stopp á miðju Laugarvatni
Þegar vélsleðamaður var að skemmta sér við að fleyta sleða sínum á Laugarvatni vildi ekki betur til en að sleðinn drap á sér á afar óheppilegum stað. Lánið var það að ekki var mjög djúpt á þeim slóðum sem vélsleði mannsins sagði stopp og honum varð ekki meint af volkinu. (meira…)
Fleiri drengir en stúlkur
ÁRIÐ 2007 fæddust 4.560 börn hérlendis, 2.359 drengir og 2.201 stúlka. Það eru fleiri börn en árið áður, en þá fæddust hér 4.415 börn. Frjósemi íslenskra kvenna var heldur meiri árið 2007 en nokkur síðustu ár en hún er reiknuð sem fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu (uppsafnað frjósemishlutfall), samkvæmt upplýsingum á vef […]
Íslendingar geta ekki lagað stöðuna á markaðnum
Árni Mathiesen fjármálaráðherra leggur áherslu á að stöðuna á íslenska fjármálamarkaðinum megi rekja til atburða sem séu að gerast úti í heimi. Í samtali við Ísland í dag sagði Árni að Íslendingar gætu ekki haft áhrif á þá þróun. Árni vill ekki tilgreina nákvæmlega hvað þyrfti að gerast til þess að íslensk stjórnvöld gripu inn […]