Búið að rífa dúkinn í gamla salnum

Eins og fram hefur komið hér á vefnum var á dögunum ákveðið að setja parkett í gamla íþróttasal Íþróttamiðstöðvarinnar. Hafist var handa eftir hádegi í dag við að rífa dúkinn og undirlagið af svo framkvæmdir geti hafist en áætlað er að byrja á því að leggja nýja parketið eftir Þjóðhátíð. Það tók vaska sveit iðnaðarmanna […]
Stefnt að því að klára útisvæðið fyrir næsta sumar
Lítið hefur orðið um framkvæmdir á útisvæði sundlaugarinnar í Vestmannaeyjum en síðasta vetur lagði bæjarstjórn Vestmannaeyja áherslu á að laga skyldi útisvæðið, helst fyrir sumarið sem nú líður. Tafir vegna hönnunar svæðisins hafa orðið til þess að ekkert verður úr framkvæmdum fyrr en í fyrsta lagi í haust. (meira…)
Sæstrengir um friðland Surtseyjar

Lagning tveggja ljósleiðarastrengja um 2,5 km kafla á verndarsvæðinu við Surtsey er ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Skipulagsstofnun kvað upp úrskurðinn í gær. Farice tilkynni í byrjun apríl um fyrirhugaða lagningu og leitaði Skipulagsstofnun umsagnar nokkurra aðila, þ. á m. Umhverfisstofnunar og Hafrannsóknastofnunar. Mat Umhverfisstofnunar var að breyta ætti fyrirhugaðri legu strengjanna svo þeir liggi […]