Réttað í Dalbæjarrétt, Skaftárhreppi.

Í síðustu viku var réttað fé af Landbrots- og Mið- áfrétti, í Dalbæjarrétt. Þar var margt fólk saman komið á laugardaginn. Allt fór vel fram og um kvöldið var réttarball í Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri. Einnig var árlegt hestamannaball haldið í Hestheimum við Hellu. Á þessum stöðum skemmti fólk sér vel og án átaka. (meira…)

Fyrir of hraðan akstur voru 50 stöðvaðir í vikunni

Í vikunni voru 128 mál hjá lögreglunni á Hvolsvelli. Fyrir of hraðan akstur voru 50 stöðvaðir í vikunni en sá sem hraðast ók var á 141 km. hraða. Einn var stöðvaður á bifreið sem hann hafði sett skráningarnúmer af annarri bifreið á. Slíkt brot varðar við hegningarlög. Tveir minnihátta árekstrar voru í vikunni og svo […]

Nýr umsjónarmaður kemur að vestan

Nýr umsjónarmaður hefur tekið til starfa við félagsmiðstöðina Zelsiuz. . Nýi umsjónarmaðurinn heitir Unnar Reynisson og er tómstunda- og félagsmálafræðingur að mennt. Unnar er að flytja á Selfoss frá Ísafirði. . Tekur Unnar við af Magnúsi Matthíassyni sem hefur sinnt starfinu um nokkurn tíma. Magnús mun halda áfram að vinna að uppbyggingu ungmennahúss. (meira…)

Opnum í október

Orðrómur þess efnis að staðurinn Volcano Café hafi verið andvana fætt eiga ekki við rök að styðjast. Björgvin Þór Rúnarsson, rekstraraðili staðarins segir að unnið sé hörðum höndum að því að gera húsnæðið klárt. „Þetta var einfaldlega mun meiri vinna en við áttum von á, húsnæðið er nánast fokhelt og við erum að byggja það […]

Skemmdir á bílum og fasteignum vegna foks

Íbúar við Nýjabæjarbraut 10, hafa enn engin viðbrögð fengið frá bæjaryfirvöldum við kvörtunum sínum um vikurfok frá uppgreftrinum við Pompei norðursins, Eldheima. Lakk á tveimur bílum fjölskyldunnar er skemmt af völdum foksins og fleiri skemmdir hafa orðið, auk óþæginda sem vikurinn veldur. (meira…)

Næsti mikli áfangastaðurinn

Ferðamálaráð hélt fund hér í Eyjum um miðja síðustu viku. Fundinn sat einnig ráðherra ferðamála, Össur Skarphéðinsson. Á bloggi sínu á netinu birtir hann hugleiðingar sínar um ferðina, stöðu Vestmannaeyja og möguleika eyjanna í ferðaþjónustu á næstu árum og segir meðal annars: (meira…)

Verðmerkingar á Árborgasvæði í þokkalegu lagi

Neytendastofa hefur gert könnun á ástandi verðmerkinga á Selfossi, í Hveragerði og Þorlákshöfn. Skoðaðar voru matvöruverslanir, bakarí, fiskbúðir og sérvöruverslanir. Almennt voru verðmerkingar í góðu lagi. Farið var í fimm matvöruverslanir á svæðinu. Valdar voru 25 vörur af handahófi í hverri verslun, kannað hvort þær væru verðmerktar og hvort verðmerking á hillu væri í samræmi […]

Flugtök aðeins bönnuð milli 23:00 og 7:00

Bæjarráð Sveitarfélagsins Árborgar samþykkti á fundi 4. september sl. að breyta reglum um takmörkun á flugumferð þannig að einungis flugtök verði bönnuð milli 23:00 og 7:00. Bæjarritara falið að láta auglýsa breytinguna, 1. gr. samþykktarinnar orðist því svo: Næturtakmarkanir: Á milli 23:00 og 07:00 eru flugtök bönnuð. Heimilt er að víkja frá þessu í neyðartilvikum […]

Leikskólinn �?skukot stækkaður

Þessa daga er verið að leggja lokahönd á viðbyggingu við leikskólann Æskukot á Stokkseyri. Í júní fluttu börnin yfir í nýrri hluta leikskólans og var þá eldri hlutinn tekinn í gegn. En í byrjun september var flutt aftur í eldri hluta leikskólans. Þannig að nú er leikskólinn tveggja deilda, unnið er að því að klára […]

Hálfkjánalegt að meta Geysi

„Við munum aldrei fallast á að Jökulsá á Fjöllum verði tekin og ég tel að verkefnisstjórnin muni ekki eyða miklum tíma eða fé í að meta þann kost, eða Gullfoss og Geysi, það virkar eiginlega hálfkjánalega að hugsa til þess, segir Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra. Unnið er að rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma og mun […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.