Jóhanna vinsælasti ráðherrann – Árni óvinsælastur

Jóhanna Sigurðardóttir er langvinsælasti ráðherrann ríkisstjórninni samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallups. Rétt rúm 60% eru ánægð með hennar störf, örlítið fleiri en í síðustu könnun. Árni Mathiesen er óvinsælastur, tæplega 80% eru óánægð með störf hans. (meira…)

Lundinn settur á alþjóðlegan gátlista

Atlantshafslundinn er í hópi tuttugu sjófuglategunda sem settur hefur verið á gátlista alþjóðlegs samnings um afrísk-evrasískra sjó- og vatnafarfugla en sáttmálinn er í tengslum við Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna. Í tilkynningu frá SÞ segir, að stærsti stofn Atlantshafsslundans sé á Íslandi en Ísland eigi ekki aðild að samkomulaginu eitt örfárra Evrópuríkja en Náttúrufræðistofnun hafi þó veitt […]

Hermann í landsliðshópnum

Í hádeginu í dag var tilkynnt um val Ólafs Jóhannessonar, landsliðsþjálfara á leikmannahópi íslenska liðsins, sem mætir Hollandi og Makedóníu í undankeppni HM 11. og 15. október. Hermann Hreiðarsson er á sínum stað og mun væntanlega bera fyrirliðabandið eins og í fyrstu tveimur leikjum liðsins í keppninni. Gunnar Heiðar Þorvaldsson er hins vegar ekki valinn […]

Frábær skemmtiatriði á Lundaballinu

Eins og allir vita var Lundaballið haldið hátíðlegt í Höllinni um síðustu helgi. Skemmtiatriðin voru frábær og eins og Helliseyingum er einum lagið, var húmorinn hafður að leiðarljósi. Nú er hægt að sjá Lundamyndbandið sem Helliseyingar framleiddu hér að neðan. Þá var einnig stuttur útvarpsfréttatími sem hægt er að hlusta á hér að neðan. (meira…)

Samið um Suðurstrandarveg

Langþráðar framkvæmdir við Suðurstrandarveg hefjast í næsta mánuði, að sögn Svans Bjarnasonar svæðisstjóra Vegagerðarinnar á Suðursvæði. Vegagerðin hefur samið við lægstbjóðanda í verkið, sem var fyrirtækið KNH ehf. á Ísafirði. KNH bauðst til að framkvæma verkið fyrir rúmar 697 milljónir króna. Eru það 73,5% af kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á 949 milljónir rúmar.Suðurstrandarvegur, milli Þorlákshafnar […]

Landssöfnun RKÍ – Göngum til góðs

Rauði kross Íslands gengst fyrir landssöfnun næst komandi laugardag, til styrktar verkefni í Kongó sem miðar að því að sameina fjölskyldur sem hafa sundrast vegna átaka í landinu. Sveitarfélagið Árborg hvetur íbúa til þátttöku í verkefninu. Sjálfboðaliðar geta skráð sig á redcrossarn@simnet.is. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.