Dagur sauðkindarinnar

Félag sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu stendur fyrir Degi sauðkindarinnar í Rangárþingi laugardaginn 18. október í Skeiðvangi, reiðhöllinni á Hvolsvelli. Fjáreigendum á milli Markarfljóts og Ytri Rangár er boðið að koma með allt að 15 fjár á sýninguna.Fjölbreytni á litum og önnur sérkenni eru æskileg. Á dagskránni verður m.a. opinn markaður á lambhrútum og gimbrum, dómar og […]

St. Ola fékk á sig brot

St. Ola, sem nú leysir farþegaferjuna Herjólf af hólmi í siglingum milli lands og Eyja, fékk á sig brot þegar skipið sigldi út frá Þorlákshöfn í kvöld. Fregnir af atburðinum eru enn nokkuð óljósar en ekki hefur náðst samband við skipið. Þó er það vitað að engin slys urðu á fólki og hélt skipið áfram […]

GAP og Landvernd með ráðstefnu í Sesseljuhúsi

Um síðast liðna helgi var fróðleg námsstefna á vegum Landverndar í Sesseljuhúsi þar sem yfirskriftin var Vistvernd í verki – menntun til sjálfbærni. Þar töluðu stofnendur Vistverndar í verki í Evrópu, þau Marilyn og Alexander Mehlmann og Peter van Luttervelt, sérfræðingur í vinnustaðaráðgjöf. Margt fróðlegt kom fram í erindum og umræðum. (meira…)

Innstæður í Sparisjóðnum að fullu tryggðar

Í ljósi þeirra aðstæðna sem upp hafa komið í fjármálakerfi landsins telur Sparisjóður Vestmannaeyja ástæðu til að greina frá sinni stöðu. Þetta kemur fram í viðtali Eyjafrétta við Ólaf Elísson, sparisjóðsstjóra. „Allar innstæður í Sparisjóðnum eru tryggar. Til frekari áréttingar vísast til nýsettra laga og yfirlýsingar ríkisstjórnar Íslands um að innstæður í innlendum viðskiptabönkum og […]

Einstakur viðburður í Höllinni í kvöld

Það verður einstakur viðburður í Höllinni í Vestmannaeyjum í kvöld þegar hin goð­sagna­kennda hljómsveit Mezzoforte stígur á svið og heldur sína fyrstu tónleika hér á landi í langan tíma. Sveitin hefur reglulega komið fram á ýmsum viðburðum hér á landi en langt er síðan sveitin hélt eiginlega tónleika. Í Eyjum hefur sveitin ekki spilað síðan […]

Leggur til 250 milljóna útgjöld

Árni Johnsen, Sjálfstæðisflokki, hefur endurflutt tillögu á Alþingi um að allt að 150 vefmyndavélum verði komið upp á fögrum og sérkennilegum stöðum á landinu. Segir í tillögunni að verkefnið myndi skapa óþrjótandi möguleika á landkynningu í þágu ferðaþjónustu, sögu, menningar og atvinnulífs og að skoðun gæti kitlað taugar til frekari kynna af landinu. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.