Verðbólgan mælist nú 17,1%
Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í nóvember 2008 er 327,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,74% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 298,3 stig og hækkaði hún um 1,84% frá október. Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 3,6% (vísitöluáhrif 0,46%), verð á áfengi og tóbaki hækkaði um 6,5% (0,17%) og verð […]
Hvernig félagslíf er í boði á Suðurlandi?
Nú er unnið að gerð gagnagrunns um hvers kyns félags- og menningarstarf sem er í boði á Suðurlandi og opið er öllum almenningi. Stjórnir félagasamtaka eru hvattar til að senda eftirtaldar upplýsingar fyrir 7. desember til skráningar í gagnagrunninn á netfangið glugginn@sudurglugginn.is : (meira…)
Engin ákvörðun liggur fyrir um niðurskurð

Undanfarna daga hafa borist fréttir af fyrirhuguðum niðurskurði hjá heilbrigðisstofnunum á landinu og m.a. var sagt frá tilskipun frá heilbrigðisráðuneyti um að loka ætti skurðstofunni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Gunnar K. Gunnarsson, forstöðumaður Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja, kannast ekki við slíkar tilskipanir og segir að leitað hafi verið til forstöðumanna og óskað eftir hugmyndum um hvernig skera mætti […]
Dæmdar bætur vegna árásar
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands dæmdi í gær tvo menn, sem í öðru máli höfðu verið sakfelldir fyrir líkamsárás, til að greiða árásarþola skaðabætur vegna varanlegrar örorku og miskabætur. Mennirnir tveir veittust að árásarþola í húsi á Stokkseyri snemma að morgni nýársdags 2003 og felldu hann í gólfið. (meira…)
Fræðslunet Suðurlands hlaut menntaverðlaun
Fræðslunetið hlaut menntaverðlaun Suðurlands en verðlaunin voru veitt á ársþingi SASS á Hvolsvelli. Þetta er í fyrsta skipti sem verðlaunin eru afhent. Það var formaður mennta- og menningarmálanefndar SASS, Ingvar Pétur Guðbjörnsson, sem afhenti Ásmundi Sverri Pálssyni framkvæmdastjóra Fræðslunetsins viðurkenninguna sem var ásamt viðurkenningarskjali, 200.000 kr. (meira…)
Verktakar tóku allt sitt úr húsi
Nýtt húsnæði Björgunarfélags Árborgar á Selfossi liggur nú undir skemmdum eftir að verktakar hreinsuðu allt sitt út úr húsinu í dag, eins og raflagnir, ljós, hreinlætistæki og allt sem tengist pípulögnum. Þá var hitinn tekin af húsinu. Ástæðan fyrir þessu er sú að verktakarnir hafa ekki fengið greiddar um 50 milljónir króna, sem þeir eiga […]
Samantekt vikuna 17. til 24. nóvember 2008
Í vikunni voru 10 teknir fyrir að aka of hratt í umdæminu Hvolsvöllur, en sá sem hraðast ók var á 124 km hraða. Helmingur þeirra sem teknir voru eru erlendir ferðamenn. Aðfaranótt þriðjudagsins var eldur í húsi í Þykkvabæ en grunur leikur á að um íkveikju sé að ræða. Málið er í rannsókn. Eldur kveiknaði […]