Fræðsla um Skaftáreldana

Yfir páskana fer fram hin árlega hátíð Sigur lífsins á Kirkjubæjarklaustri. Þar er fléttað saman fræðslu um Skaftáreldana árið 1783, útivist á söguslóðum og helgihaldi páskahátíðarinnar. (meira…)

Aldamótaþorp til sýnis á Eyrarbakka

Sýningin Hönnun og handverk við hafið var opnuð í Gónhól á Eyrarbakka í dag, skírdag, og stendur hún fram á sunnudag. Opið er frá kl. 13-17 alla dagana. Líkan af Aldamótaþorpinu er til sýnis, listasýning indverska listamannsins Baniprosonno stendur yfir og kaffihúsið verður opið. (meira…)

ESB er ekki ógn við sjávarbyggðir

Anna Margrét Guðjónsdóttir, sem skipar 4. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, segir í grein um sjávarútvegsmál og Evrópusambandið að stefna ESB byggi ekki á sameiginlegu eignarhaldi yfir auðlindinni heldur sameiginlegri nýtingu hennar og samráði við ákvörðun aflamarks. Anna Margrét er forstöðumaður Brusselskrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hún segir að útgerðir, sjómenn og sjávarbyggðir njóti margvíslegs […]

Gunnar Heiðar með fjögur mörk fyrir varaliðið

Gunnar Heiðar Þorvaldsson kom ekkert við sögu þegar Esbjerg tapaði fyrir OB, 2:1, í Óðinsvéum í dag í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hann var í staðinn látinn leika með varaliði Esbjerg í dönsku 2. deildinni og gerði þar heldur betur vart við sig með því að skora öll fjögur mörk liðsins í sigri á Varde, […]

Fasteign ekki eyland í efnahagslífinu

Gunnlaugur Grettisson, situr í stjórn Fasteignar hf. fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar. Hann sagði að árið 2004 hafi þáverandi meirihluti bæjar­stjórn­ar V og B lista ákveðið að ganga til samstarfs við Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. Bærinn seldi Fasteign húseignir fyrir 1.200 miljónir króna. „Af því fé fóru 15% af söluverðinu eða 180 milljónir inn í félagið sem hlutafé […]

Nudd er meira en nudd

Sonja Ruiz Martinez útskrifaðist sem sjúkraliði 1996 og hefur starf­að á sjúkrahúsinu þar til sl. haust en þá hóf hún nuddnám við Nuddskóla Íslands. Hún er nú að útskrifast frá skólanum og verður með nuddaðstöðu á Aroma snyrtistofu í framtíðinni. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.