Enn kvartað undan hananum

Málefni hanans, sem býr í góðu yfirlæti í miðjum Vestmannaeyjabæ er hvergi lokið en í síðustu viku var sagt frá því að nágranni hafi kvartað undan hanagalinu eldsnemma morguns. Lögreglu berast enn kvartanir og krefst nágranninn nú þess að þaggað verði niður í hananum og vísar til lögreglusamþykktar um búfjárhald. Þetta kemur fram í dagbók […]
Fyrningaleið stjórnvalda er andstæð hagsmunum Vestmannaeyja

Í hádeginu í dag var kallað til bæjarstjórnarfundar í Ráðhúsi Vestmannaeyja. Til fundarins voru boðaðir helstu hagsmunaaðilar í sjávarútvegi í Vestmannaeyjum en fyrsta mál fundarins var umræða um málefni sjávarútvegsins og þá fyrst og fremst fyrirhugaða fyrningaleið nýmyndaðrar ríkisstjórnar. Bæjarstjórn samþykkti harðorða ályktun gegn fyrirhugaðri leið og segir hana andstæða hagsmunum Vestmannaeyja. Ályktunina má lesa […]
�?orgeir, Raggi og Land og synir á �?jóðhátíð

Nú berast daglega fréttir af hverjir koma til með að koma fram á Þjóðhátíðinni. Um helgina var greint frá því að hljómsveitin Land og synir muni koma fram en fáir fá jafn miklar undirtektir og þeir þegar þeir leika lagið Lífið er yndislegt. Sveitin mun spila á sunnudagskvöldinu. (meira…)
VÍS styrkir ÍBV

Undirritaður hefur verið samningur milli ÍBV og VÍS þess efnist að VÍS mun verða styrktaraðili ÍBV fyrir komandi tímabil. Markmið VÍS er að að leggja sitt af mörkum til að styðja ÍBV til góðra verka á vellinum í sumar svo að Vestmannaeyingar fái notið þess að styðja ÍBV í deild þeirra bestu sem lengst áfram […]