Stöndum frekar með atvinnulífinu

Félög ungra sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi lýsa yfir megnri óánægju með stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Stjórnarsáttmáli hinnar nýju vinstristjórnar er ekki til þess fallinn að leysa úr þeim vandræðum sem íslenskt atvinnulíf á við að etja um þessar mundir, heldur þvert á móti eykur hann á óvissuna með óljósu orðalagi og skýlausum hótunum um að keyra einn […]
Að leggja byggðir landsins í rúst?

Enn fer af stað umræðan um fyrirhugaðar breytingar á kvótakerfi okkar Íslendinga í formi hræðsluáróðurs sem einkenndi kosningabaráttu Sjálfstæðisflokks fyrir síðustu Alþingiskosningar. Hræðsluáróður búinn til af ráðandi öflum í bæjarfélaginu. (meira…)
Motormax Magnúsar Kristinssonar í gjaldþrot
Motormax. fyrirtæki í eigu Magnúsar Kristinssonar, hefur farið fram á gjaldþrotaskipti og búið er að skipa skiptastjóra yfir þrotabú félagsins. Verslun Mótormax verður í kjölfarið lögð niður og rekstri félagsins hætt. Við gjaldþrotið munu um 20 manns missa vinnuna. (meira…)
Vestmannaeyingar lögðu ekki árar í bát í gosinu, heldur snéru heim og mokuðu ösku af húsþökum og hófu endurbyggingu
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, líkti fjármálahruninu við Vestmannaeyjagosið veturinn 1973, á árlegum SFF-degi Samtaka fjármálafyrirtækja í dag. Sagði hann að líkt og með gosið muni allir núlifandi Íslendingar alltaf muna hvað þeir voru að gera þennan vetur. (meira…)
Stöðvamótið í golfi á laugardag

Á laugardaginn verður haldið svokallað Stöðvamót í golfi í Vestmannaeyjum. Styrktaraðilar mótsins eru Vinnslustöðin og Ísfélagið en mótið hefst klukkan níu um morguninn. Leiknar verða 18 holur með forgjöf. Auk þess verða verðlaun fyrir besta skor án forgjafar, nándarverðlaun á 7., 12. og 17. flöt. Hámarksforgjöf er 24 hjá körlum en 28 hjá konum. (meira…)
Sjósvölur og lundar í sambýli

Sambýli stóru sjósvölu og lunda í Elliðaey í Vestmannaeyjum hefur vakið athygli vísindamanna. Í sumar á að rannsaka þetta sambýli betur með aðstoð holumyndavélar, að sögn dr. Erps Snæs Hansens, sviðsstjóra vistfræðirannsókna hjá Náttúrustofu Suðurlands. (meira…)
Á móti sól í �?orlákshöfn

Hljómsveitin Á móti sól spilar á Ráðhúskaffi í Þorlákshöfn á laugardaginn. Ansi mörg ár eru liðin frá því að sveitin lék þar síðast. Í tilefni Eurovisionkeppninnar mun hljómsveitin taka íslenska Evróvisjónsmellinn Is it true? (meira…)
Árni Mathiesen aftur í dýralækningar

Árni M. Mathiesen, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, hefur ráðið sig sem dýralækni hjá Dýralæknaþjónustu Suðurlands á Stuðlum í Ölfusi. Árni kemur inn í stað Sigurðar Inga Jóhannssonar alþingismanns sem hefur starfað hjá Dýralæknaþjónustunni í fjölda ára. (meira…)