Margrét Tryggvadóttir er rödd Suðurkjördæmis

Margrét Tryggvadóttir, 10. þingmaður Suðurkjördæmis og eini þingmaður Borgarahreyfingunnar í kjördæminu, er eini þingmaður kjördæmisins sem kemst á mælendaskrá í umræðum um stefnuræðu forsetisráðherra í kvöld. Fyrir utan forsætisráðherra eru fjórtán þingmenn á mælendaskrá og athyglisvert að enginn annar flokkur velur þingmann úr Suðurkjördæmi til að taka þátt í umræðunum. (meira…)
KK, Jón �?lafs og félagar á sunnudagskvöld

Samkvæmt frétt á www.dalurinn.is er dagskrá Þjóðhátíðarinnar óðum að taka á sig mynd. Nú síðast bættust þeir félagar KK og Jón Ólafs, ásamt fleiri góðum við kvölddagskrá sunnudagskvöldsins. Þeir munu taka um hálftíma prógramm eins og þeim er einum lagið eins og sagt er í frétt vefsins. (meira…)
Goslokahátíðin 3. til 5. júlí í sumar

Undirbúningur vegna Goslokahátíðarinnar í sumar er hafinn en hátíðin verður haldin 3. til 5. júlí. Í fréttatilkynningu frá undirbúningshópi hátíðarinnar kemur fram að til standi að bjóða upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Dagskráin er þó ekki fullmótuð og er óskað eftir hugmyndum að eða framlögum í dagskránna. Fréttatilkynninguna má lesa hér að neðan. […]
Fyrsta mark Margrétar Láru

Margrét Lára Viðarsdóttir opnaði markareikning sinn fyrir Linköping í dag þegar hún tryggði liðinu sigur á Djurgården, 1-0. Margrét Lára kom af bekknum á 70. mínútu og skoraði sigurmarkið tíu mínútum síðar. (meira…)
Eggjatími úteyjanna hafinn

Nú er sá tími genginn í garð þegar Eyjamenn fara til eggja en fyrst og fremst er sóst eftir fýls- og svartfuglseggjum. Helliseyingar fóru í sína eyju um helgina og var afraksturinn nokkuð góður, stór og falleg fýlsegg. Þeir sögðust hafa komið við í Suðurey í leiðinni til að kanna ástandið þar en sögðu að […]
Byrjað á brimvarnargörðum fyrir Landeyjahöfn

Um helgina var fyrsta hlassinu sturtað í fjöruna í Landeyjunum fyrir fyrirhugaða Landeyjahöfn. Áætlað er að mynd verði komin á garðana þegar veturinn gengur í garð en um er að ræða tvo brimvarnagarða sem munu hvor um sig verða um 600 metra langir. Í verkið þarf á aðra milljón rúmmetra af fyllingarefni en unnið verður […]
Mín hugmynd era ð auka við aflaheimildir strax, þær settar í sérstakan viðlaga pott

Það er meira en að segja það þegar reynt er að rugga bátnum ef kvótakerfið er annarsvegar. Strax ályktanir frá hagsmunaaðilum og jafnvel sveitarstjórnum. Þetta kerfi er hingsvegar ekki óbreytalegt frekar en nokkuð annað. (meira…)