Hagnaður félagsins rúmar 500 milljónir króna

Vinnslustöðin hf. birti í dag uppgjör félagsins fyrir fyrstu 6 mánuði ársins. Er það að þessu sinni í evrum. Samkvæmt uppgjörinu er hagnaður Vinnstöðvarinnar 2,9 milljónir evra eða um 530 milljónir króna en var á sama tíma í fyrra rúmar 620 milljónir króna. Heildartekjur félagsins í íslenskum krónum talið voru 4.575 milljónir, drógust saman um […]

Fanndís stefnir á fimmta sætið

Kvennalið Íslandsí knattspyrnu tekur þátt í lokakeppni EM í Finnlandi í næstu viku en í íslenska hópnum eru tvær Eyjastelpur, þær Margrét Lára Viðarsdóttir og Fanndís Friðriksdóttir. Ísland leikur í afar sterkum riðli en með Íslandi í riðli eru Þýskaland og Noregur, sem bæði hafa orðið Evrópumeistarar og svo Frakkland, sem einmitt var með Íslandi […]

Menn verða að fara að hysja upp um sig buxurnar

Það var ös í höfninni í morgun. Suðurey með 170 kör lítil, Drangavík rúm 100 kör eftir brælutúr fyrir vestan, náði alla leið norður á Hornbanka, Vestmannaey með 150 kör mest ýsu af Ingólfshöfða……….. Svo landaði Brynjólfur krabba og fiski. Einnig landaði snuddarinn Sólborg RE, einum gám. Nú er ennþá komið í ljós að útgerðir […]

Landsölufólk hefur svo mikið að gefa Evrópusambandinu

Hún er mörg hörmungin sem steðjar að íslensku þjóðinni og þau ósköp sem koma undan teppinu á helsta stolti okkar, fjármálamarkaðnum, eru með slíkum end­emum að hverjum landsmanni hlýtur að ofbjóða. Eyjamenn hafa að mestu sloppið nema hvað kaupið okkar hefur lækkað eins og annarra og lánin hækkað. Og ekki er hún björt framtíðin og […]

Hermann ekki með gegn �??skyttunum�??

Hermann Hreiðarsson er enn á sjúkralistanum hjá Portsmouth og ljóst er að hann verður ekki með sínum mönnum á morgun þegar þeir sækja Arsenal heim á Emirates Stadium. Hermann tognaði í læri í æfingaleik með Portsmouth-liðinu nokkrum dögum áður en flautað var til leiks í ensku úrvalsdeildinni og hefur ekki náð að hrista meiðslin af […]

Baldur kemur í staðinn fyrir Herjólf

Stefnt er að því að Herjólfur fari í slipp þann 7. september nk. og gert ráð fyrir að hann verði í burtu í tvær vikur. Reiknað er með að Breiðafjarðarferjan Baldur leysi Herjólf af þennan tíma. Þær upplýsingar fengust hjá Kristínu Sigurbjörnsdóttur hjá Vegagerðinni að beðið væri eftir staðfestingu frá samgöngu­ráðuneyti um að Baldur fengi […]

Aftur málað í Skipalyftunni

Í sumar hefur verið starfandi máln­ingarteymi hjá Skipalyftunni en lítil sem engin málningarvinna hefur verið hjá fyrirtækinu síðan sjálf skipalyftan hrundi í október 2006. Sex eru í teyminu sem er hrein viðbót við þá 25 sem starfa í Skipa­lyftunni. Stefán Jónsson, yfirverkstjóri hjá Skipalyftunni segir að þeir hafi málað Bergey VE fyrr á þessu ári, […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.