Fundu fíkniefni á farþega Herjólfs

Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunni þegar fíkniefnahundurinn Luna þefaði uppi lítilræði af maríjúana á einum af komufarþegum skipsins. Viðkomandi viðurkenndi að eiga efnið og telst málið upplýst. Skemmtanahald um helgina fór hins vegar fram án teljandi vandræða þrátt fyrir nokkra ölvun í bænum. Þetta kemur fram í dagbókarfærslu lögreglunnar sem má lesa hér að […]
Hraðakstur í Vestmannaeyjum

Tveir ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur í Vestmannaeyjum í morgun. Það er óvenjulegt að tveir séu stöðvaðir þar fyrir slíkt athæfi með jafn skömmu millibili, að sögn lögreglu. Annar ók 51 km yfir leyfilegum hraða og var á 101 km hraða og hinn fór 37 km of hratt. (meira…)
Á kannski að fara að hamstra?

Þetta byrjar gæfulega. Spurning fyrir ráðamenn í Reykjavík að hlusta á Eyjamenn í þessum efnum. Alltaf legið fyrir að þetta skip er allt of lítið til þess að sigla á þessari leið. Það hafa Vestmannaeyingar bent á. Reyndar hefði ég viljað heyra meira í ráðamönnum Eyjamanna í þeim efnum. (meira…)
Elísa og Kristín í U-19 ára landsliðið

Þær Elísa Viðarsdóttir og Kristín Erna Sigurlásdóttir hafa verið valdar í U-19 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu en liðið tekur þátt í riðlakeppni Evrópumótsins. Riðill Íslands verður leikinn í Portúgal og hefst um næstu helgi. (meira…)
Baldur fer ekki seinni ferð í dag

Baldur mun ekki fara seinni ferð milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar í dag vegna veðurs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá afgreiðslu Herjólfs en Baldur leysir Herjólf af hólmi næstu tvær vikurnar meðan Herjólfur er í slipptöku. Baldur fór fyrri ferð samkvæmt áætlun, frá Vestmannaeyjum klukkan 8:00 í morgun og frá Þorlákshöfn klukkan 12:00. (meira…)
Viðar �?rn með slitið krossband?

Viðar Örn Kjartansson, framherji ÍBV, meiddist illa í tapinu gegn FH í gær og möguleiki er á að hann sé með slitið krossband. Viðar meiddist á hné og var borinn af leikvelli eftir samstuð við Gunnar Sigurðsson undir lok fyrri hálfleiks í gær. (meira…)
Baldur farinn í fyrstu ferð sína

Nú er Breiðafjarðaferjan Baldur á leið til Þorlákshafnar í sinni fyrstu ferð á siglingaleiðinni en skipið leysir Herjólf af hólmi næstu tvær vikurnar. Herjólfur lagði af stað norður til Akureyrar um miðnætti og er áætlað að skipið verði komið á áfangastað klukkan sjö í fyrramálið. Baldur er háð þeim annmörkum að sigla ekki í meira […]