�??Sláturtíð�?? hafin

Niðurskurðarhnífurinn er kominn á loft hjá ríkisvaldinu og ljóst að draga á saman í Vestmannaeyjum eins og víðast hvar á landsbyggðinni. Í síðustu viku bárust þær fréttir að frá og með næstu áramótum verði landið eitt skattaumdæmi. Áfram verður starfsemi á fimm stöðum úti á landi en Vestmannaeyjar eru ekki þar á meðal. (meira…)
Mikið um að vera á Volcano og í Höllinni

Það verður nóg um að vera í Höllinni og Volcano Café um helgina. Helgin byrjar strax á morgun með stórtónleikum Papa og Gylfa Ægis, þar sem kóngurinn sjálfur Bubbi Morthens mætir. Tónleikarnir verða haldnir í Höllinni og hefjast klukkan 20.30. Á föstudagskvöldið verður svo sumarlokahóf ÍBV-íþróttafélags á sama stað en Siggi Hlö mun svo þeyta […]
Séra Kristján bloggar á Eyjunni

Séra Kristján Björnsson, sóknarprestur í Eyjum hefur bæst í myndarlegan hóp bloggara á Eyjunni en fyrsta blogg birtist hjá Kristjáni síðasta sunnudag. „Það er ekki annað hægt fyrir eyjaklerk en vera á Eyjunni. Nú nenni ég ekki að vera lengur á Moggabloggi en ástæða þess er að nú get ég alltaf sagt með sanni að […]
Silfur á Lundanum um helgina

Hljómsveitin Silfur mun trylla lýðinn á Lundanum bæði föstudags- og laugardagskvöld en sveitin hefur komið reglulega til Eyja við góðar undirtektir. Sveitin hefur þegar eignast stóran aðdáendahóp í Eyjum og því má búast við góðri stemmningu á Lundanum um helgina. Fjörið byrjar hins vegar á fimmtudagskvöldinu á fimmtudagsfjörinu með allskonar tilboðum. (meira…)