Ráðherra setur Eyjamenn skör lægra

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur sett fram frumvarp til laga um stjórn fiskveiða þar sem gert er ráð fyrir 2000 lestum af skötusel án þess að þeim verði úthlutað á grundvelli aflahlutdeilda í teg­undinni á þessu og næsta fiskveiðiári. Áður hafði ráðherra skert veiðiheimildir í skötusel um 500 tonn á þessu ári. Gert er […]

Vara við einelti í gegnum Facebook

Að gefnu tilefni viljum við vekja athygli á að á morgun, föstudaginn 20. nóvember, hefur verið boðaður svokallaður Kick a ginger day” á Facebook. Í því felst að sparka megi í þá sem rauðhærðir eru og er fólk beinlínis hvatt til þess. Heimili og skóli og framkvæmdastjóri Olweusar-áætlunarinnar á Íslandi telja að með þessu háttalagi […]

Tel afspyrnuslakt að formaður �?V skuli ekki vera meira inn í málunum en þetta

Grétar Mar Jónsson, fyrrum alþingismaður og nú útgerðarmaður í Grindavík er ekki sáttur við orð Þórðar Rafns Sigurðssonar, formanns Útvegsbændafélags Vestmannaeyja en Þórður Rafn segir í grein í Fréttum að hugmyndir að breytingum í fiskveiðistjórnun sé klæðskerasaumuð fyrir Grétar Mar sem nýlega keypti sér bát. Þórður Rafn segir Frjálslynda flokkinn vaða uppi með Guðjón A. […]

Áhersla lögð á að verja grunn­þjónustu á heilsugæslunni

Heilbrigðisstofnuninni Vestmanna­eyjum er gert að skera niður rekstr­ar­kostnað um 10 prósent á þessu ári og 5 prósent á næsta. Gripið var til þess að loka skurðstofunni tíma­bundið sl. sumar og starfshlutfall hjá starfsfólki var lækkað um 5 prósent. Þetta kom fram á starfsmannafundi sem framkvæmdastjóri hélt í síðustu viku til að skýra starfsfólki frá stöðu […]

Senn rís nýtt knatt­spyrnuhús

Nú hillir loksins undir að byrjað verði á byggingu fjölnota íþrótta­húss við Hástein. Nýja húsið á að hýsa hálfan knattspyrnuvöll og verður á honum gervigras af fullkomn­ustu gerð. Það er byggingafyrirtækið Steini og Olli ehf. sem reisir húsið. Magnús Sigurðsson, fram­kvæmda­stjóri, sagði í samtali við Fréttir að búið væri að panta stálgrind­ina frá Lettlandi og […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.