Eyjamenn fá heimaleik gegn Selfossi

Í Íslandsmótinu í 1. deild karla í handbolta er leikin þreföld umferð en í dag var raðað upp í þriðju umferðina. Eyjamenn fá heimaleik gegn Selfyssingum, sem eru í efsta sæti deildarinnar en þremur dögum síðar sækir ÍBV Aftureldingu heim en Afturelding er í öðru sæti á meðan ÍBV er í því þriðja. Það gæti […]

Arnór Hermannsson átti fallegustu vetrarmyndina

Sigurvegari í Ljósmyndasamkeppni Frétta og Ljósmyndasafns Vestmannaeyja fyrir janúarmánuð var bakarameistarinn Arnór Hermannsson. Mynd hans prýðir forsíðu Frétta að þessu sinni en þemað fyrir janúar var vetur og myndaði Arnór vetrarsólina leika við Haugasvæðið og Helgafell. Alls bárust 20 myndir frá áhugaljósmyndurum í Eyjum og margar myndirnar glæsilegar. Hægt er að sjá myndirnar hér að […]

Sýndu Eyjum og nýrri höfn mikinn áhuga

Kristín Jóhannsdóttir, markaðsstjóri Vestmannaeyjabæjar, sótti ferða­kaupstefnuna Mid- Atlantic á vegum Icelandair um síðustu helgi. Kristín var með bás í samstarfi við markaðsfulltrúa Suðurlands og þang­að kom fólk í ferðaþjónustu til að kynna sér það helsta sem í boði er í landshlutanum. (meira…)

Vestmannaeyjar skera sig úr með óverulega hækkun

Í könnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði á breytingu á útsvari og álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2010 í 15 fjölmennustu sveitarfé­lögunum kemur ljós að flest halda sig við sömu útsvarsprósentu. Mikil hækkun er á fasteignagjöldum, mismikil þó og sorphirðugjald hækk­ar undantekningarlítið. Vest­manna­eyjar eru með óbreytt útsvar en skera sig úr í fasteigna- og sorp­hirðugjöldum með óverulega […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.