Gylfa er slétt sama!

Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra virðist ætla áfram að krossleggja puttana og vona að Hæstiréttur reddi nú málunum fyrir hann. Enginn vilji virðist vera til að taka á þessu stóra vandamáli á heildstæðan máta. Talsmaður neytenda lagði fram tillögur á sínum tíma um að skipaður yrði gerðadómur til að leita ásættanlegrar niðurstöðu fyrir bæði lánveitendur og lántakendur. […]

Sindri engin hindrun fyrir ÍBV

Sindri frá Hornafirði reyndist lítil hindrun fyrir ÍBV en liðin mættust tvívegis í Eyjum um helgina. Í gær vann ÍBV mjög auðveldan sigur en þegar upp var staðið skildu sextíu stig liðin að. Leikurinn í dag var því nánast formsatriði enda voru Eyjamenn ekki í neinun vandræðum með að leggja Sindra aftur að velli. Lokatölur […]

Frestað til morguns

Í dag átti karlalið ÍBV í handbolta að leika gegn Þrótti í Reykjavík. Hins vegar reyndist ekki flugfært til Eyja í dag og því varð að fresta leiknum. Nýr leiktími er á morgun, sunnudag klukkan 14.00. Leikurinn fer fram í íþróttahúsinu Austurbergi í Breiðholtinu. (meira…)

ÍBV lagði HK 3:0 í Kórnum

Karlalið ÍBV í knattspyrnu lagði HK að velli í dag þegar liðin mættust í æfingaleik í Kórnum. Yngvi Magnús Borgþórsson, Eyþór Helgi og Finnur Ólafsson skoruðu mörk ÍBV í leiknum en Eyjamenn spiluðu mjög vel í leiknum. (meira…)

Hermann er klár í bikarleikinn í dag

Hermann Hreiðarsson verður með Portsmouth í nágrannaslagnum á móti South­ampton í sextán liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í dag. Hermann hefur ekkert getað leikið með liði sínu síðan hann meiddist eftir aðeins 27 mínútur á móti Manchester City 31. janúar síðastliðinn. Hermann er hins vegar orðinn góður af meiðslunum og tilbúinn í nýtt bikarævintýri með Portsmouth. […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.