Gælum við að byrja æfa í október eða nóvember

Framkvæmdir eru hafnar við grunn fjölnota íþróttahúss og áætlanir gera ráð fyrir að húsið verði komið í gagnið í október eða nóvember. Fyrsta skóflustungan var tekin í lok september 2007 og jarðvegsframkvæmdir hófust ári síðar. „Við byrjuðum á grunninum 2. febrúar og erum að vinna í sökklinum allan hringinn. Húsið er 4500 fermetrar að innanmáli […]
Fundur �?jóðarvettvangs haldinn á heimili Árna Johnsen
Árni Johnsen býður upp á fundarborð á sínu heimili, Höfðabóli, fyrir þá sem vilja laugardaginn 20. febrúar milli 16.00 og 18.30. Um er að ræða Þjóðarvettvang sem býður upp á smáa umræðufundi fólks um allt land varðandi IceSave með því að tengja það mál við gildin virðingu, réttlæti og heiðarleika. Markmið Þjóðarvettvangs er að skapa […]
Stefán Friðriksson ráðinn framkvæmdastjóri Ísfélagsins

Stefán Friðriksson, viðskiptafræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja hf. Stefán er 46 ára og hefur undanfarin tæp 13 ár starfað hjá Vinnslustöðinni hf. í Vestamannaeyjum og gegnir stöðu aðstoðarframkvæmdarstjóra þess félags. Stefán er kvæntur Þjóðhildi Þórðardóttur og eiga þau fjögur börn. (meira…)
5000 tonn af kolmunna

Það sem hefur bjargað okkur er kolmunninn sem við höfum keypt af norskum skipum. Fengum við 5000 tonn af þremur skipum um helgina,“ sagði Páll Scheving, verksmiðjustjóri í bræðslu Ísfélagsins. Þar á bæ eru menn að gera sig klára fyrir loðnuna eins og í bræðslu Vinnslustöðvarinnar sem hefur tekið á móti lítils háttar af gulldeplu […]
Sjö af ellefu tengjast Eyjum sterkum böndum

Keppnin Ungfrú Suðurland verður haldin á Hótel Selfossi þann 26. mars nk. og af 11 stúlkum sem taka þátt í keppninni eru sex frá Vestmannaeyjum. Frá Eyjum eru það þær Thelma Sigurðardóttir, Tinna Ósk Þórsdóttir, Birgitta Ósk Valdimarsdóttir, Sara Dögg Guðjónsdóttir, Kristjana Rún Gunnarsdóttir og Svava Kristín Grétarsdóttir. Auk þess tekur Hlíf Hauksdóttir þátt í […]
Trausti ráðinn framkvæmdastjóri
Trausti Hjaltason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar ÍBV en knattspyrnudeild auglýsti stöðuna fyrir skömmu. Fjórir sóttu um en Trausti er fæddur og uppalinn Eyjapeyi, sonur Hjalta Kristjánssonar, heilsugæslulæknis og Veru Bjarkar Einarsdóttur. Trausti gekk upp í gegnum yngri flokka ÍBV áður en hann hóf að spila undir stjórn föður síns hjá litla bróður ÍBV, KFS. […]