Almannavarnarnefnd fundar í Eyjum

Fréttir af aukinni skjálftavirkni í Eyjafjallajökli hafa vakið upp spurningar meðal Eyjamanna um hvernig eldgos í jöklinum gæti haft áhrif í Eyjum. Þannig er vatnsból Eyjamanna við rætur jökulsins og Landeyjahöfn gæti verið í hættu ef jökulhlaup yrði í kjölfar eldgoss. Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja fundar í dag vegna málsins en Elliði Vignisson, bæjarstjóri og varaformaður nefndarinnar […]

Setur svip á umhverfið

Senn rís fjölnota íþróttahús við Týsheimilið og er gert ráð fyrir að það verði tilbúið til notkunar í haust. Húsið er 4500 fermetrar að innanmáli. Hæst fer það í fimmtán metra. Það er hannað af TPZ teikni­stofu og verður bogadregið eins og sést á teikningunni og á að falla vel að umhverfinu. Mikið þurfti að […]

Eyjamenn mæta Breiðabliki í kvöld

Karlalið ÍBV mætir í kvöld öðru úrvalsdeildarliði í Lengjubikarnum þegar Eyjamenn og Breiðablik leiða saman hesta sína. Leikurinn fer fram í Kórnum í Kópavogi og eru stuðningsmenn ÍBV á höfuðborgarsvæðinu hvattir til að styðja við sitt lið. Þeir hinir sem verða út í Eyjum í kvöld geta fylgst með leiknum á vefsíðunni SportTV. (meira…)

Eyjabandið Vangaveltur spilar á Samfés-hátíðinni

Um helgina fer fram Samfés-hátíð í Laugardals­höll en Samfés eru samtök félagsmiðstöðva á landinu. Samfés-hátíðin er tveggja daga hátíð ungmenna þar sem boðið verður upp á ball á föstudeginum og söngvakeppni á laugardeginum. Búist er við að milli fjögur og fimm þúsund ungmenni muni fjölmenna á hátíðina en á ballinu mun m.a. hljómsveitin Vangaveltur frá […]

Nemendur aðstoða á loðnuvöktum

Loðnu var landað úr átta skipum í Vestmannaeyjum í gær. Samtals var aflinn rúmlega átta þúsund tonn. Meðal þeirra sem taka þátt í loðnuvinnslunni eru framhaldsskólanemendur í Eyjum. Þeir nemendur sem hafa mætt vel í skólann fá vikufrí frá námi til að taka þátt í loðnuvertíðinni. Sólveig Adolfsdóttir, nemandi í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum, segir að […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.