Breyttir tímar? – Fréttamanni fortíðar svarað
Júlíus Ingason, blaðamaður, sendi frá sér grein í síðasta tölublaði Frétta þar sem illa var vegið að bæði nemendaráði og nemendum skólans. Við í nemendaráðinu komum okkur saman um að svara greininni. (meira…)
Karlar á klósettinu
Svona í tilefni föstudagsins. – Það hafa flestir tekið eftir því, að þegar konur bregða sér á salernið, – séu þær staddar í selskap, þá fara þær þangað saman í hóp. Og þar er málin víst rædd inn að innstu rótum. – En karlar eiga líka sínar sérkennilegu siði á salerninu, en það ræðst af […]
Fullkomið brúðkaup frumsýnt í kvöld

Í kvöld, klukkan 20.00 verður leikritið Fullkomið brúðkaup frumsýnt í bæjarleikhúsinu. Verkið naut gríðarlegra vinsælda í uppsetningu Leikfélags Akureyrir og gekk fyrir fullu húsi, bæði á Akureyri og síðar í Reykjavík í um ár. Ari Matthíasson leikstýrir uppsetningu leikfélags Vestmannaeyja en Fullkomið brúðkaup er gamansamur farsi af bestu gerð. (meira…)
Siggi í Húsavík sýnir í Eyjabúð

Málverkasýning á verkum Sigga í Húsavík verður opnuð á föstudaginn klukkan 17.00 í Eyjabúð. Sýningin verður opin alla helgina. Að sýningunni standa nokkrir gamlir refir úr fótboltanum, Helgi og Geir Lása, Halli Bedda, Friðfinnur, Óli Venna og Óskar Valtýs, Kiddi Gogga, Einar Björn, Huginn Helga, Maggi Steindórs og fleiri. (meira…)
Dólgarnir komnir í úrslit

Eyjasveitin Dólgarnir er komin í úrslit Músíktilrauna. Strákarnir spiluðu á þriðjudaginn í undanriðli keppninnar en voru ekki meðal þeirra tveggja sveita sem komust áfram í það skiptið. En dómnefnd keppninnar velur nokkrar hljómsveitir eftir á sem komast áfram og greinilegt að Dólgarnir hafi unnið dómnefndina á sitt band. Dólgarnir er tríó en bandið skipa þeir […]
LANDEYJAH�?FN

Á dögunum var haldinn hinn árlegi Steinsteypudagur sem er ráðstefna um steypu og byggingariðnað á vegum Steinsteypufélags Íslands. Meðal dagskrárliða var erindi Sigurðar Áss Grétarssonar, forstöðumanns hafnasviðs Siglingastofnunar má lesa hér, en það nefndist einfaldlega Landeyjahöfn“. “ (meira…)
�?kraínumaðurinn með fjögur mörk
Eins og áður hefur verið greint frá, er knattspyrnulið ÍBV með Úkraínumann til reynslu þessa dagana. Um er að ræða framherjann Denis Sytnik, sem um tíma var á mála hjá úkraínska stórliðinu Dynamo Kiev. Sytnik fór mikinn í æfingaleik á þriðjudagskvöldið og skoraði fjögur mörk í 5:2 sigri ÍBV gegn Hvöt. (meira…)
Eru á kolmunnaveiðum við Írland

Drengirnir á Huginn VE 55 eru iðnir að viðhalda bloggsíðu sinni. Þar eru sagðar veiðifréttir, fréttir af mannlífinu um borð og einnig í landi. Skipið er nú statt rétt vestan við Írland á kolmunnaveiðum. Það hefur verið leiðindaveður hjá þeim undanfarið en Huginsdrengirnir eru að vonast til að fari að lægja. Síðastliðinn laugardag héldu þeir […]
Framkvæmt fyrir 1725 milljónir til ársins 2013

Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja var samþykkt að vísa þriggja ára áætlun Vestmannaeyjabæjar til síðari umræðu. Í áætluninni kemur m.a. fram að ráðgert er að framkvæma fyrir 1725 milljónir til ársins 2013 eða rúmar 400 þúsund krónur á hvern íbúa. „Sumir kunna að segja að það sé ekki kreppu bragur yfir þessari áætlun en því erum […]
Vilja Sjálfstæðismenn í Eyjum ganga í Evrópusambandið?

Gestur á laugardagsfundi Sjálfstæðisfélaganna á morgun kl. 11, verður Evrópusambandssinninn Benedikt Jóhannesson. Það er því líklegt að málefni Evrópusambandsins, verði meðal annars rædd á fundinum. Hvort Ísland eigi að ganga þar inn eða ekki. Bendedikt hefur verið í fararbroddi innan Sjálfstæðisflokksins, – þeirra sem vilja ganga í Evrópusambandið. Spurning hvort hann nær að sannfæra Vestmannaeyinga. […]