Gert ráð fyrir 17.000 til 18.000

Þjóðhátíðin 2009 var fjölmenn og skilaði ÍBV-íþróttafélagi miklum hagnaði. Nú stefnir í að öll aðsóknarmet falli þegar siglingar í Land­eyjahöfn hefjast. Um leið margfald­ast flutningsgeta Herjólfs og óttast margir að Heimaey og Vestmanna­eyja­bær beri ekki mikið fleiri en voru á þjóðhátíð í fyrra, þegar gestir voru um 14 þúsund manns. Óttast er að ekki verði […]

Eina sem kemur upp um aldurinn er skallinn

Í tengslum við kynningu á ÍBV liðinu á Fótbolti.net er ítarlegt viðtal við Tryggva Guðmundsson, sem gekk í raðir síns gamla félags í vetur. Magnús Már Einarsson, ritstjóri Fótboti.net tók viðtalið en Eyjafréttir fengu leyfi til að birta það í heild sinni hér að neðan. Í viðtalinu er farið um víðan völl, m.a. rætt hvort […]

ÍBV spáð 10. sæti

Knattspyrnuvefurinn Fótbolti.net kynnir þessa dagana liðin í úrvalsdeild karla til leiks en liðin eru kynnt samkvæmt spá vefsins. Samkvæmt henni enda Eyjamenn í 10. sæti úrvalsdeildarinnar, af 12 liðum og halda því sæti sínu meðal þeirra bestu. Kynningin á ÍBV-liðinu var unnin í samstarfi við Eyjafréttir og má einnig sjá skemmtilegt sjónvarpsviðtal við Andra Ólafsson. […]

Hjálpum nágrönnum okkar undir Eyjafjöllum við hreinsunarstörf!

Bæjarstjórn Vestmannaeyja hvetur alla Eyjamenn, sem tök hafa á til þess að taka þátt í hreinsunarátaki undir Eyjafjöllum nk. laugardag 1. maí. Farið verður frá Eyjum í boði Herjólfs með fyrri ferð kl. 8.15 á laugardaginn 1. maí og til baka aftur með seinni ferð 19.30 þann sama dag. Rútur flytja fólkið til og frá […]

Diskóinu slegið á frest

Dansleik, sem vera átti á laugardaginn 1. mí í Höllinni hefur verið frestað fram á haust af óviðráðanlegum ástæðum. Ballið hefur verið sett á þann 11. september 2010. Við biðjumst velvirðingar á þessu en minnum á að 7. maí næstkomandi, mun risasveitin Ný Dönsk mæta í Höllina til að gleðja Eyjamenn. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.