Nýr leikmaður ÍBV var á óskalista Arsenal og Man Utd

James Hurst, sem gekk til liðs við ÍBV á dögunum á láni frá Portsmouth var eftirsóttur af stórliðum fyrir tveimur árum. Hurst, sem er fæddur 1992, er bakvörður að upplagi og lék með West Bromwich Albions áður en Arsenal, Aston Villa, Manchester United og Portsmouth höfðu áhuga á að fá þennan unga leikmann. (meira…)
�?ljós niðurstaða eftir fund með samgönguráðherra

Þingmenn Suðurkjördæmis funduðu í dag með Kristjáni Möller, samgönguráðherra um málefni Landeyjarhafnar og Herjólfs. Á fundinum var rætt um mögulega fjölgun ferða, þá sérstaklega að bæta við morgunferðum við vetraráætlun. Eygló Harðardóttir, þingmaður sagði að þingmannahópurinn hafi beðið töluvert lengi eftir þessum fundi en því miður væri niðurstaða fundarins óljós. (meira…)
KFS hafði betur gegn Birninum

KFS hafði betur gegn Birninum í 1. umferð Vísabikarkeppninnar en liðin áttust við í blíðunni á Helgafellsvellinum. Leikurinn var jafn og spennandi, Einar Kristinn Kárason kom KFS yfir á 7. mínútu með glæsilegu marki en gestirnir jöfnuðu hálftíma síðar. Páll Þorvaldur Hjarðar tryggði svo sínu liði sigurinn með skallamarki og þar við sat. Lokatölur 2:1 […]
Margrét Lára skoraði í bikarnum

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði eitt marka Kristianstad í dag þegar liðið vann Stattena á útivelli, 4:0, í 16-liða úrslitum sænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Kristianstad var ekki í vandræðum gegn liði Stattena en félögin voru í harðri fallbaráttu í úrvalsdeildinni í fyrra og því lauk með því að Stattena féll. (meira…)
Frábær árangur á könnunarprófum

Samkvæmt skýrslu Námsmatsstofnunar um samræmd könnunarpróf haustið 2009 í 4. 7. og 10. bekk var árangur nemenda í Grunnskóla Vestmannaeyja mjög góður. Þetta kom fram á fundi fræðslu- og menningarráðs þar sem fræðslufulltrúi kynnti helstu niðurstöður. Þar segir að nemendur í 4. bekk 2009 til 2010 hafi náð frábærum árangri í stærðfræði og góðum árangri […]
Sjúkraflug frá Akureyri
Flugmálastjórn Íslands afturkallaði flugrekstararleyfi Flugfélags Vestmannaeyja þann 27. apríl þar sem félagið uppfyllti ekki kröfur reglugerðar um fjármál flugfélaga. Sjúkratryggingar Íslands hafa gengið frá tímabundnu samkomulagi við Mýflug vegna sjúkraflugs á Vestmannaeyjasvæði og sagt upp samningi við Flugfélag Vestmanneyja. (meira…)
KFS spilar í bikarnum í dag

KFS leikur sinn fyrsta leik í sumar í dag, fimmtudag. Liðið tekur þá á móti utandeildarliðinu Birninum í 1. umferð Visa-bikarkeppninnar. Leikurinn hefst á frekar óvenjulegum tíma, eða klukkan 12.00. Það er gert svo að Bjarnarmenn hafi möguleika á að ná seinni ferð Herjólfs eftir leik. Leikurinn mun fara fram á settum tíma þar sem […]