Gunnar Heiðar náði ekki að heilla forráðamenn Charlton

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sem er til reynslu hjá enska 2. deildarliðinu Charlton, varð fyrir því óláni að meiðast í æfingaleik liðsins gegn AFC Wimbledon á laugardaginn. Hann mun því ekki geta tekið þátt í næsta æfingaleik Charlton gegn Welling sem fram fer á morgun og er óvíst með framhald hans hjá félaginu. (meira…)

Heimir þjálfari fyrri umferðar Íslandsmótsins

Karlalið ÍBV situr í öðru sæti Pepsídeildarinnar í knattspyrnu þegar Íslandsmótið er hálfnað en fyrir mótið áttu fæstir von á því að liðið yrði í þessari stöðu. Knattspyrnuvefurinn Fótbolti.net gerir upp fyrri umferðina í dag en vefurinn valdi Heimi Hallgrímsson, þjálfara ÍBV þjálfara fyrri umferðarinnar. Þá var enski bakvörðurinn James Hurst valinn besti ungi leikmaðurinn […]

�?g kvíði fyrir �?jóðhátíð á hverju einasta ári!

Tilhlökkun vegna Þjóðhátíðar í Eyjum eykst dag frá degi – nema á lögreglustöðinni. Þar taka menn ekki gleði sína aftur fyrr en að lokinni Þjóðhátíð. Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum, segist vonast til þess að gestir á Þjóðhátíð í Eyjum í ár verði ekki fleiri en 16.000 en í fyrra voru þeir um 14.000. Hann […]

Hækkuðu laun sín um fimmt­ung

Bæjarstjórn Vestmannaeyja fjall­aði um þóknun til fulltrúa í nefnd­um og ráðum á fyrsta fundi nýrrar stjórnar. „Vægi nefndarsæta skal haldast óbreytt frá því sem verið hefur. Fyrir grunneiningu skal greitt 7229 kr.,“ segir í fundargerð. Samkvæmt upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ var grunneining áður 6083 krónur sem þýðir 20 prósenta hækkun. (meira…)

�?kumenn sýnið aðgát

Starfsmenn Vestmannaeyjabæjar vinna nú hörðum höndum að viðhaldi og fegrun umhverfisins. Meðal þeirra verka sem til falla á hverju sumri er að mála línur og gangbrautir á götur bæjarins en þessa dagana vinna tveir hópar við að mála línurnar. Á hverjum stað er helmingi götunnar lokað með keilum, bæði á meðan málað er og á […]

Uppselt í 22 vélar á mánudag hjá Flugfélagi Íslands

Bókanir ganga mjög vel í flug og skip fyrir þessa Þjóðhátíð. Nýjustu fréttir af bókunum í flug koma ekki á óvart í kjölfar mikilla bókanna hjá Herjólfi. Fimmtudaginn 29. júlí eru 6 vélar á áætlun og uppselt í 3. Föstudaginn 30. júlí eru svo 11 vélar á teikniborðinu og uppselt í 9. (meira…)

Okkar tilfinning að fíkniefnaneyt­endur séu orðnir yngri

Fíkniefnavandinn hefur farið vax­andi á Íslandi undanfarin ár og eru Vestmannaeyjar þar engin undantekning. Illa virðist ganga að ná stjórn á þessum vanda en að öllu jöfnu ætti að vera hægt að stýra honum, eða halda honum í lág­marki, með virkum forvörnum og fræðslu til ungmenna. En er eitt­hvað annað til ráða og hvað getum […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.