Fullur bær af ferðamönnum í dag

Það var mikið um að vera í dag í Vestmannaeyjabæ en strax í morgun fóru að flykkjast í bæinn ferðamenn. Eyjamenn eru orðnir vanir slíku eftir að Herjólfur hóf siglingar í Landeyjahöfn enda mikið af ferðamönnum sem hafa skotist í dagsferðir til Eyja. Hins vegar bættust í dag við tvö skemmtiferðaskip, annars vegar portúgalska skipið […]

Rástímaskráning í golfinu

Á þriðjudaginn var tekin í notkun svonefnd rástímaskráning hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja. All­margir golfklúbbar hafa tekið upp rástímaskráningu, aðallega klúbb­arnir á höfuðborgarsvæðinu þar sem ásókn er mikil. GV er tuttugasti klúbburinn sem tekur upp slíka skráningu og Elsa Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri GV, segir það hafa verið nauðsynlegt í kjölfar þess að Herjólfur hóf siglingar í Landeyjahöfn. (meira…)

Nífalt fleiri SMS á sunnudegi þjóðhátíðarinnar

Í fréttatilkynningu frá Símanum kemur fram að fjöldi SMS-skilaboða sem fóru um GSM og 3G senda Símans í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina, sexfölduðus samanborið við venjulega helgi. Ef Sunnudagur þjóðhátíðarinnar er skoðaður sérstaklega nífaldaðist fjöldi skilaboðanna miðað við venjulegan sunnudag. (meira…)

Lundavarp misferst algerlega í Vestmannaeyjum og víðar um land

Útlit er fyrir að mjög fáar lundapysjur komist á legg í Vestmannaeyjum, Akurey, Ingólfshöfða og Papey í ár. Nú hafa egg ýmist verið afrækt eða pysjurnar drepist fljótlega eftir klak í öllum þeim holum sem Náttúrustofan hefur fylgst með í sumar. Varpárangurinn í Vestmannaeyjum hefur verið slæmur undanfarin ár en aldrei sem nú. Ástandið er […]

Herjólfur hefur flutt um 40 þúsund farþega frá 21. júlí

Á fundi bæjarráðs í gær var eitt mál á dagskrá, flutningar Herjólfs frá 21. júlí og til 4. ágúst síðastliðinn. Á því tímabili hefur Herjólfur flutt alls 35.773 farþegar milli lands og Eyja, 19.564 frá Landeyjahöfn en 16.209 frá Vestmannaeyjum. Fluttir hafa verið 4.865 bílar á tímabilinu, 2.531 frá Landeyjahöfn en 2.334 frá Vestmannaeyjum. Flutningavagnarnir […]

Sveit GV klár

Golfklúbbur Vestmannaeyja teflir fram sveit í 1. deild karla í sveitakeppninni sem fram fer í Hafnarfirði um helgina. Þetta er annað árið í röð sem Eyjamenn eru í efstu deild en GV hefur síðustu ár verið á flakki milli 1. og 2. deildar. Sveitina skipa eftirfarandi: (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.