Harma rangfærslur um samskipti við stéttarfélögin

Drífandi stéttarfélag og Afl starfsgreinafélag harma þær rangfærslur er komið hafið fram í fréttamiðlum vegna samskipta félaganna við Verkalýðsfélag Þórshafnar. Fulltrúar Drífanda og Afls fóru á Þórshöfn til að ræða við starfsmenn bræðslunnar, trúnaðarmann þeirra og formann Verkalýðsfélag Þórshafnar. Var það gert eftir samskipti við bræðslumennina þar sem staðið höfðu frá því um miðjan desember, […]
Ummæli forsvarsmanna stéttarfélaganna Afls og Drífanda fordæmd –

Starfsmenn fiskimjölsverksmiðju Ísfélags Vestmannaeyja á Þórshöfn fordæma harðlega yfirlýsingar forsvarsmanna samninganefnda Afls og Drífanda um að þeir hafi brugðist bræðslumönnum á Austurlandi og í Vestmannaeyjum í þeirra kjaradeilu og því hafi ekkert orðið úr boðuðu verkfalli. (meira…)
Skandia byrjuð að dæla sandi

Dæluskipið Skandia byrjaði að dæla sandi upp við Landeyjahöfn um hádegisbil í dag. Sigmar Thormod Jacobsen, skipstjóri Skandia segir aðstæður ekki eins og best verði á kosið en þó nógu góðar til að byrja dælingu. „Þetta var nógu gott til að prófa skipið við þessar aðstæður. Hér er enginn vindur en svolítill sjór. Við dældum […]
Heimir fylgist með Teiti í Bandaríkjunum

Heimir Hallgrímsson, þjálfari knattspyrnuliðs ÍBV, stýrir liði sínu ekki í upphafi deildabikarsins. Eyjamenn mæta Leikni R. í fyrsta leik sínum í mótinu annað kvöld en þá verður aðstoðarþjálfarinn Dragan Kazic við stjórnvölinn. Heimir flaug nefnilega í gær til Bandaríkjanna en hann mun næstu daga dvelja hjá Teiti Þórðarsyni og liði hans, Vancouver Whitecaps, í æfingabúðum […]
Skandia reynir aftur í dag

Dæluskipið Skandia er nú statt inni í Landeyjahöfn en skipið lá þar í nótt. Reynt var í gærmorgun að hefja dýpkunarframkvæmdir en sjólag var ekki nógu gott og hélt skipið því til hafnar í Vestmannaeyjum. Síðdegis sama dag var farið aftur út og reynt á ný en enn var sjólag óhentugt. Þegar rætt var við […]
Gandí VE dreginn til hafnar

Skuttogarinn Gandí VE 171 var í gær dreginn til hafnar í Hafnarfirði vegna vélarbilunar í aðalvél skipsins. Skipið var á grálúðuveiðum 160 mílur vestur af Hafnarfirði þegar bilunin kom upp. Gandí er í eigu Vinnslustöðvarinnar. Var hann dreginn í land af Jóni Vídalín VE sem er í eigu félagsins og var að veiðum suður af […]