Eyjamenn töpuðu í kvöld fyrir Leikni

Eyjamenn töpuðu í kvöld fyrir Leikni frá Reykjavík í fyrstu umferð Lengjubikarsins. Það er óhætt að segja að sigur Leiknis sé óvæntur enda leikur Leiknir í 1. deild næsta sumar en ÍBV í úrvalsdeild og var fyrirfram talið sigurstranglegra. En það dugir ekki alltaf til. Leiknismenn komust yfir um miðjan fyrri hálfleikinn en Tryggvi Guðmundsson […]
Kominn tími á breytingar

Nú er verið að leggja lokahönd á breytingar í Höllinni en staðurinn hefur fengið ansi hressilega andlitslyftingu. Rekstraraðilar Hallarinnar, þeir Bjarni Ólafur Guðmundsson og Einar Björn Árnason geta nú skipt hinu gríðarstóra húsi upp í þrjá smærri sali sem verða stúkaðir af með hljóðeinangrandi tjöldum. Í kvöld stendur svo mikið til þegar boðið verður upp […]
Kvótakerfið – umræða á villigötum

Umræðan um kvótakerfið er enn einu sinni komin á yfirborðið og eins og svo oft áður, því miður, þá orða menn hlutina í samræmi við sína hagsmuni, en hvers vegna var þetta kvótakerfi sett á? Hvert var takmarkið? Hvernig hefur til tekist? Og hvernig er staðan í dag? Árið 1984 var núverandi kvótakerfi sett á, […]
Landeyjarhöfn ekki opnuð fyrir helgi

Ekki mun takast að opna Landeyjarhöfn fyrir helgi. Sanddæluskipið Skandia vann við dýpkun hafnarinnar fram yfir hádegi í dag, en neyddist til að hætta dælingu vegna vaxandi ölduhæðar. „Við leggjum alla áherslu á að opna höfnina svo að það sé hægt að nýta þessa góðu samgöngubót, en við ráðum ekki við veðrið,“ sagði Guðjón Egilsson, […]
Flugfélagið Ernir bætir við ferð í dag

Í fréttatilkynningu frá Flugfélaginu Ernir segir að farin verði aukferð til Eyja kl. 14.45 og frá Eyjum kl. 15.30. Ennþá eru einhver sæti laus í þess ferð. (meira…)
Hefur trú á því að varlega verði farið í niðurskurði

„Enn sem komið er, er aðeins búið að velta upp mögulegum leiðum til hagræðingar. Þar er tvennt nefnt sem snýr að grunnskólanum. Annars vegar er möguleg skerðing á úthlutuðum kennslustundafjölda – og við vonum að sjálfsögðu að til hennar þurfi ekki að koma,“ sagði Fanney Ásgeirsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Vestmannaeyja, þegar hún var spurð að því […]
Reynt að gera sem mest úr því sem eftir er

Verkfall bræðslumanna, sem átti að hefjast klukkan hálf átta á þriðjudagskvöldið, var afboðað á síðustu stundu. Var það mat samninganefndar Afls á Austurlandi og Drífanda í Vestmannaeyjum að verkfall myndi ekki skila tilætluðum árangri. Bæði Ísfélag og Vinnslustöð höfðu gert ráðstafanir miðað við að til verkfalls kæmi. Meðal annars var búið að bræða allt hráefni […]