Orkuverð þyrfti að hækka um 77%

Ef lagt væri auðlindagjald á Orkuveitu Reykjavíkur í anda hugmynda Styrmis Gunnarssonar um hvernig skattleggja eigi sjávarútveg landsmanna þyrfti orkuverð til Reykvíkinga að hækka um 77%, til að standa undir núverandi rekstri með eðlilegri endurnýjunarfjárfestingu,“ sagði Sigurgeir B. Kristgeirsson, Binni í Vinnslustöðinni, í hádegisfyrirlestri í Valhöll, höfuðstöðvum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á þriðjudaginn. (meira…)
Sjö ár fyrir kynferðisbrot í Eyjum

Karlmaður var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir að misnota þrjár stúlkur í Vestmannaeyjum og taka myndir af brotum sínum gegn þeim. Þá fundust í fórum mannsins rúmlega átta þúsund ljósmyndir og yfir sex hundruð hreyfimyndir sem m.a. sýna börn á kynferðis og klámfenginn hátt. Maðurinn var dæmdur til að greiða einni stúlkunni þrjár milljónir […]
Ljónið spakt og rólegt

Ólína Þorvarðardóttir, varaformaður sjávarútvegsnefndar Alþingis tilkynnir sérstaklega á bloggsíðu sinni að hún hafi sloppið heil á húfi úr heimsókn sinni til Eyja. „Þegar fréttist að ég væri á leið til Eyja að ræða augliti til auglitis við Eyjamenn um fiskveiðistjórnunarmálin sögðu menn að ég væri að stinga höfðinu í gin ljónsins. Þegar til kom reyndist […]
Fækka þarf pottum í frumvarpi

Fækka þarf svokölluðum pottum í frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða, að mati Ólínu Þorvarðardóttur, varaformanns sjávarútvegsnefndar Alþingis. Hún telur að færri pottar muni einfalda kerfið, en rætt er um að hlutdeild úthlutunarpotta í heildarkvóta vaxi með tímanum. Ólína bendir á að samfara opnara umhverfi verði verðmyndun í sjávarútvegi heilbrigðari en ella. Þetta kom fram […]