Hálftíma seinkun á Herjólfi

Gert er ráð fyrir um 30 mínútna seinkun á brottför Herjólfs frá Þorlákshöfn í kvöld þ.e. brottför kl 19:45. Farþega eru hvattir til þess að mæta amk 30 min fyrir brottför og að fylgjast með fréttum á herjolfur.is og á facebook síðu Herjólfs. Nánari upplýsingar í síma 481-2800. (meira…)
Eyjamenn tefla fram öflugri sveit

Vestmannaeyingar tefla fram öflugum liðum í 5X5-Crossfit mótinu sem fram fer í Íþróttamiðstöðinni um helgina. Keppa bæði karla- og kvennalið og Gyða Arnórsdóttir tekur þátt í einstaklingskeppninni. Í kvennaliðinu eru Jóhanna Jóhannsdóttir, Sigurlína Guðjónsdóttir, Anna Lilja Sigurðardóttir, Gyða Arnórsdóttir og Bjartey Gylfadóttir. Í karlahópnum eru Ævar Örn Kristinsson, Jón Þór Guðjónsson, Guðlaugur Guðjónsson, Alexander Gautason […]
Heiður að starfa með Lars

Þetta var einn af þeim möguleikum sem mér stóðu til boða og mikill heiður fyrir mig að vera valinn í þetta starf, og heiður að starfa með Lars, sagði Heimir Hallgrímsson eftir að hann hafði verið kynntur sem næsti aðstoðarlandsliðsþjálfari íslenska karlaliðsins í knattspyrnu. “ (meira…)
Gæti orðið stærra og skemmtilegra en í fyrra

Annað árið í röð verður fjórða og síðasta mótið í Þrekmótaröðinni 2011, 5X5 áskorunin, haldið í Vestmannaeyjum. Mótið verður í Íþróttamiðstöðinni á laugardaginn og verður það með sama sniði og fyrra. Þá voru keppendur um 200 og er vonast til að þeir verði fleiri núna. Ætla m.a. nokkrir Vestmannaeyingar að taka þátt í mótinu. (meira…)
Landeyjahöfn fær 100 milljónir króna en þarf 244 milljónir

Fjármálafrumvarpið ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur gerir ráð fyrir að framlög til Landeyjahafnar lækki um 103 milljónir frá gildandi fjárlögum þar sem framkvæmdir dragast saman og verða 100 milljónir króna. Framlaginu verði varið til landgræðslu á Landeyjasandi, lóðafrágangs, dýpkunar á sandrifi og breytinga á ferjuaðstöðu í Vestmannaeyjum. (meira…)
Heimir kynntur sem aðstoðarlandsliðsþjálfari

Nú er að hefjast blaðamannafundur í höfuðstöðvum KSÍ. Þar er verið að kynna til leiks sænska landsliðsþjálfarann Lars Lagerbäck sem næsta landsliðsþjálfara Íslands í karlaboltanum. Honum til aðstoðar verður Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson, sem verið er að kynna sem aðstoðarlandsliðsþjálfara. (meira…)
�??�?ruggar�?? flugsamgöngur milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja

Í kvöldfréttum RUV sjónvarps þann 11. okt. sl. var frétt um byggingu fyrirhugaðs hótels í Vestmanneyjum. Húrra! Ég er sjálfur dreifbýlingur (frá Ísafirði) og skil vel baráttu Vestmannaeyinga þegar kemur að uppbyggingu í ferðamálum og bættum samgöngum. Það sem ég hnaut um í fréttinni var umsögn viðmælanda (sem var Hallur Magnússon, sjórnarformaður 60 ehf) um […]