�?vílíkur sigur hjá stelpunum

Florentina Stanciu, markvörður ÍBV var í banastuði í dag þegar ÍBV tók á móti FH í N1 deild kvenna. Flora, eins og hún er kölluð, varði alls 26 skot í leiknum enda fór það svo að FH skoraði aðeins tíu mörk í leiknum öllum, þar af fjögur í síðari hálfleik. ÍBV vann því með fjórtán […]

Herjólfur í Landeyjahöfn

Reynt verður að sigla Herjólfi í Landeyjahöfn á morgun, sunnudag. Fyrstu ferð skipsins hefur verið frestað um klukkutíma til að auka líkurnar á að hægt verði að sigla í Landeyjahöfn. Þetta er gert til að ná lengri tíma frá háflóði, sem er fyrir klukkan átta í fyrramálið. Áætluð brottför, ef þetta gengur eftir, er frá […]

Fjórar skrifuðu undir í dag

Fjórir leikmenn kvennaliðs ÍBV í fótbolta skrifuðu í dag undir áframhaldandi samning hjá félaginu. Þetta eru þær Kristín Erna Sigurlásdóttir, Elísa Viðarsdóttir, Hlíf Hauksdóttir og Sædís Magnúsdóttir. Allar framlengdu þær samningnum um tvö ár. (meira…)

Herjólfur sigldi inn í Landeyjahöfn

Herjólfur var rétt í þessu að sigla inn til Landeyjahafnar. Brottför frá Landeyjahöfn verður kl 20:00 í kvöld. Ekki verða sigldar fleiri ferðir í dag. Þetta er í samræmi við áður útgefna vinnureglu að sigla eins og oft og mögulegt er til Landeyjahafnar þú stundum þurfi að tilkynna það með stuttum fyrirvara. Við biðjum farþega […]

Ronja Ræningjadóttir frumsýnd í dag

Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir í dag, laugardag, klukkan 17:00 fjölskylduleikritið um Ronju Ræn­ingja­dóttur. Það er Þröstur Guð­bjarts­son sem leikstýrir en alls taka 27 leikarar þátt í verkinu, frá 12 ára og upp úr. Aðalhlutverk er í hönd­um Söru Hlínar Sölvadóttur, sem leikur Ronju og Kristleifs Krist­leifs­sonar, sem leikur Birki. Auk þess leika þau Zindri Freyr Ragn­arsson […]

Hallgrímur les upp úr Konunni við 1000°

Hallgrímur Helgason, rithöfund­ur, kemur til Eyja í tengslum við safnahelgi og les upp úr nýjustu skáldsögu sinni í Surtseyjarstofu á laugardagskvöld. Konan við 1000° kom fyrst út á þýsku í tengslum við bókamessuna í Frankfurt þar sem Ísland var heiðursgestur og hefur fengið mikið lof gagnrýnenda. Hallgrímur hefur áður lesið í Vestmannaeyjum á Safnahelgi og […]

Eigum samleið �?? Lykillinn er Landeyjahöfn

Vestmannaeyingar eru kröftugt og skemmtilegt fólk. Hér í Eyjum er mikil og fjölbreytt þjónusta sem getur nýst margfalt fleira fólki en raun ber vitni, á sama hátt geta Vest­mannaeyingar sótt fjölmargt hingað upp á land. Samvinna og samstarf er lykilorðið. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.