Eyjamenn úr leik

Eyjamenn lutu í lægra haldi í viðureign sinni gegn Snæfellsbæ í spurningaþættinum Útsvari í Ríkissjónvarpinu. Viðureignin var æsispennandi og réðust úrslitin á síðustu spurningunni en Snæfellsbær hafði betur 84:80 eftir að hafa svarað 5 stiga spurningu rétt. (meira…)
Dýpkunaraðferðir taki mið af raunverulegum aðstæðum en ekki spám sem ekki hafa gengið eftir

Bæjarstjórn Vestmannaeyja lýsir yfir miklum áhyggjum af stöðu mála í Landeyjahöfn og þar með á þjóðveginum til Vestmannaeyja. Sérstaklega er tekið undir það mat samráðshóps um Landeyjahöfn að staða dýpkunarmála er langt frá því að vera í ásættanlegum farvegi. Bæjarstjórn Vestmannaeyja tekur undir það mat samráðhópsins að tafarlaust þurfi að yfirfara sandburða- og efnisburðaútreikninga af […]
Kveikt á jólatrénu í dag

Kveikt verður á jólatrénu á Stakkagerðistúni í dag, föstudag kl. 17.00 á Stakkagerðistúni. Þar mun Lúðrasveit Vestmannaeyja leika undir stjórn Jarls Sigurgeirssonar. Ávarp flytur Páley Borgþórsdóttir, formaður bæjarráðs, Stúlknakór Védísar mun syngja undir stjórn Védísar Guðmundsdóttur. Ronja ræningjadóttir tendrar ljós jólatrésins, helgistund verður í umsjón séra Kristjáns Björnssonar og félagar í Leikfélagi Vestmannaeyja og jólasveinarnir […]
Risa handboltamót í Eyjum um helgina

Um helgina fer fram risa handboltamót í Vestmannaeyjum. Þá verður keppt í Íslandsmótinu hjá 5. flokki, bæði karla og kvenna. Árni Stefánsson, hjá ÍBV-íþróttafélagi, segir að skipulagning mótsins hafi gengið vel. „Í það heila eru þetta um 600 manns sem við erum að taka á móti, keppendur, þjálfarar og fararstjórar. Alls verða leiknir 118 leikir […]
Forsala á Afann hefst í dag

Forsala á einleikinn Afinn hefst í dag, föstudag klukkan 13:00 í verslun Axel Ó. Einleikurinn hefur fengið mjög góða dóma en það er grínleikarinn góðkunni Siggi Sigurjóns sem fer með eina hlutverkið í leikritinu. Sjálf sýningin verður svo í Kiwanishúsinu 11. febrúar en aðeins eru 200 miðar í boði, þannig að áhugasamir verða að hafa […]
Eyjamenn mæta Snæfellsbæ í kvöld

Í kvöld mun lið Vestmannaeyja mæta liðið Snæfellsbæjar í spurningaþættinum Útsvari. Þetta er annað árið í röð sem Eyjamenn komast í 2. umferð en í fyrra komst liðið áfram sem eitt af stigahæstu tapliðunum. Í ár unnu þeir hins vegar Skagafjörð 69:70 og eru því komnir í 16-liða úrslit á ný. (meira…)
Tími á að prófa eitthvað nýtt

Fyrirliði ÍBV í kvennaknattspyrnunni síðustu ár, Þórhildur Ólafsdóttir, er gengin í raðir Þórs/KA. Hún skrifaði undir tveggja ára samning hjá Akureyrarliðinu í síðustu viku en Þórhildur var talsvert mikið frá vegna meiðsla síðasta sumar. Hún náði þó að leika 13 leiki og skora í þeim eitt mark en Þórhildur meiddist einmitt í heimaleik gegn Þór/KA. […]