Risa handboltamót í Eyjum um helgina
Um helgina fer fram risa handboltamót í Vestmannaeyjum. Þá verður keppt í Íslandsmótinu hjá 5. flokki, bæði karla og kvenna. Árni Stefánsson, hjá ÍBV-íþróttafélagi, segir að skipulagning mótsins hafi gengið vel. „Í það heila eru þetta um 600 manns sem við erum að taka á móti, keppendur, þjálfarar og fararstjórar. Alls verða leiknir 118 leikir í sex deildum í karla­flokki og fimm deildum í kvenna­flokki. Það verður keppt á fjórum völlum því við notum líka salinn í Týsheimilinu. Mótið byrjar klukkan þrjú á föstudag og lýkur kl. tvö á laugardag,“ sagði Árni en ÍBV teflir fram tveimur karlaliðum og einu kvennaliði.

Nýjustu fréttir

„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.