
Sigtryggur Örn Ólafsson, betur þekktur undir listamannsnafninu S!ll!, er sextán ára tónlistarmaður sem hefur þegar gefið út eigin lög og komið fram á tónleikum. Hann hefur ekki stundað formlegt tónlistarnám heldur lært af eldri bróður sínum, vinum og með því að prófa sig áfram. Draumurinn er að verða söngvari og nefnir hann Justin Bieber sem fyrirmynd. Á Safnahelgi í Vestmannaeyjum ætlar Silli að færa lagið Gamli Jón í nýjan búning á óvenjulegum tónleikum í sundhöllinni.
Silli er sonur hjónanna Ólafs Jóhanns Borgþórssonar, Óla Jóa prests, sem er Eyjamaður, og Guðbjargar Sigríðar Hauksdóttur. Fjölskyldan flutti frá Kópavogi til Vestmannaeyja í byrjun árs 2025. Foreldrar hans hafa hvatt hann til að fylgja tónlistardraumunum og leggja sig allan fram.
Tónlistaráhuginn kviknaði þegar Silli var níu ára, í þriðja bekk grunnskóla. „Ég var bara að borða kvöldmat þegar bróðir minn, sem hafði lengi fengist við tónlist, spurði hvort ég vildi koma niður í herbergið hans. Hann var með fullt af græjum og bauð mér að prófa. Ég sagði bara já og fannst þetta strax gaman.“
Silli átti þá engan upptökubúnað en fékk stundum að „stelast í tölvuna“ hjá bróður sínum. Þar lærði hann fyrstu handtökin og hefur síðan þróað eigin tónlist í samstarfi við vini sína.
Hann hefur þegar öðlast reynslu af tónleikahaldi. Meðal annars kom hann fram á Rave-ballinu í Barnaskólanum og hefur fengið aðstoð frá Doctor Victor við tónlistargerðina. Í febrúar hélt hann útgáfutónleika í Ásgarði í tilefni af útgáfu lagsins Veit hvað hún vill, sem hann samdi ásamt Birki Gauta Bergmann og Jakobi Þór Möller. Þá kom hann fram á Goslokahátíðinni í sumar. 
Silli hefur þróað eigin aðferð við lagasmíðar. Vinir hans búa til taktinn og undirspilið en hann finnur nafn á lagið og semur síðan textann.
„Það þarf að vera eitthvað sem festist í hausnum á fólki. Eins og í fyrsta laginu mínu, Veit hvað hún vill. Sú setning kemur oft fyrir og þannig verður lagið grípandi.“
Textarnir hafa aðallega fjallað um stelpur og ástina en Silli vill þróa textagerðina og sækja meira í eigin reynslu. Tónlistin er blanda af poppi og rappi en söngurinn heillar hann mest. Lög hans má finna á Spotify og YouTube. Lagið Baby komdu, sem kom út í júní, hafði fengið um fimm þúsund spilanir þegar viðtalið var tekið. „Það tók bara klukkutíma eða eitthvað. Ég fékk sendan takt frá vinum mínum, var einn heima og settist inn í stofu. Þetta var mjög einfalt.“
Hvað langar þig að gera í framtíðinni? „Mig langar eiginlega bara að verða söngvari. Fara í svona Justin Bieber-stíl, meira söng en rapp.“
Fimmtudagskvöldið 29. október klukkan 20.00 tekur Silli þátt í tónleikunum Hvalasöngur í kafi og sundmenning Vestmannaeyja í Sundlaug Vestmannaeyja.
Þar mætast tónlist, náttúra og saga. Tónlistarfólk úr Eyjum kemur fram og kvikmyndum og ljósmyndum úr sögu sunds og sundkennslu í Vestmannaeyjum verður varpað á veggi sundlaugarinnar. Hvalahljóð og myndefni úr rannsóknum Háskóla Íslands verða einnig hluti af dagskránni.
Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Fab Lab Vestmannaeyja og Vestmannaeyjabæjar og Biggi Níelsson leiðir tónlistarflutninginn. Silli ætlar að endurgera lagið Gamli Jón, sem meðal annars er þekkt í flutningi Árna Johnsen, auk þess að flytja eigin lög. „Ég er spenntur fyrir þessu. Það er líka öðruvísi að búa til lag fyrir einhvern ákveðinn atburð,“ segir Silli.
Það sem hófst sem leikur í tölvunni hjá eldri bróður hans er orðið að framtíðardraumi. Silli hefur þegar stigið sín fyrstu skref í tónlistinni og stefnir enn hærra. Hvort hann fetar í fótspor Justins Bieber verður framtíðin að leiða í ljós, en áhugann og metnaðinn skortir ekki.
Hér er tengill á S!ll! á Spotify: https://open.spotify.com/artist/7luZyi5XGdGDLsqRY5MuJA
Hér má sjá viðtal Frosta Gíslasonar við þá félaga sem eru að undirbúa tónleikana.