„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“

Sigtryggur Örn Ólafsson, betur þekktur undir listamannsnafninu S!ll!, er sextán ára tónlistarmaður sem hefur þegar gefið út eigin lög og komið fram á tónleikum. Hann hefur ekki stundað formlegt tónlistarnám heldur lært af eldri bróður sínum, vinum og með því að prófa sig áfram. Draumurinn er að verða söngvari og nefnir hann Justin Bieber sem […]

Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val

Eyjamaðurinn Sigurður Arnar Magnússon hefur ákveðið að yfirgefa ÍBV og ganga til liðs við Val, en ÍBV féll úr Bestu deildinni í sumar. Samningur Sigurðar við Val gildir út tímabilið 2029. Sigurður Arnar, sem er 27, lék upp alla yngri flokka ÍBV og hefur leikið með meistaraflokki félagsins frá árinu 2016. Hann lék einnig með […]

Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn

Fundur bæjarstjórnar 2026

Þrjár uppsagnir starfsmanna Vestmannaeyjabæjar hafa á skömmum tíma verið úrskurðaðar ólögmætar af innviðaráðuneytinu. Forsendur úrskurðanna eru ekki allar þær sömu, en saman kalla þeir óhjákvæmilega á spurningar um verklag, eftirlit og pólitíska ábyrgð. Það er bæði rétt og nauðsynlegt að gæta trúnaðar um persónuleg málefni starfsmanna. Eyjafréttir hafa frá upphafi lagt áherslu á að birta […]

Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa. Vaxandi austanátt er í kortunum í kvöld, miðvikudaginn 28. október, og hvassviðri og rigning í nótt. Samkvæmt veðurspá er gert ráð fyrir austan 13–20 metrum á sekúndu í nótt, hvassast undir Eyjafjöllum. Á fimmtudag snýst vindur í sunnanátt um hádegi og dregur úr vindi. […]

Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við

Á ljósmyndadegi í Safnahúsinu á fimmtudag klukkan 13.30 verða sýndar elstu varðveittu ljósmyndir úr blómlegu starfi Leikfélags Vestmannaeyja. Þar gefst gestum tækifæri til að rifja upp gamlar leiksýningar, þekkja kunnugleg andlit og leggja sitt af mörkum við að varðveita sögu leiklistar í Eyjum.  Ljósmyndadagurinn er hluti af Safnahelgi í Vestmannaeyjum. Að þessu sinni verður sjónum […]

Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld

Alls hefur verið landað um 11.000 tonnum af norsk-íslenskri síld hjá Vinnslustöðinni og um 1.200 tonn eru eftir af kvóta félagsins. Fram kemur á vef Vinnslustöðvarinnar að vertíðin hafi hafist 11. september þegar Gullberg VE 292 landaði um 370 tonnum. Farið var hægt af stað fyrstu vikurnar á meðan nýtt uppsjávarhús var tekið í notkun […]

Um 70% foreldra sögðust finna mun

Í síðasta blaði Eyjafrétta var rætt við Önnu Rós Hallgrímsdóttur og Einar Gunnarsson, skólastjóra Grunnskóla Vestmannaeyja, um reynsluna af Kveikjum neistann. Þau sögðu fyrstu vísbendingar um árangur verkefnisins jákvæðar en lögðu áherslu á að enn væri of snemmt að kveða upp endanlegan dóm. Fyrsti árgangurinn sem hóf skólagöngu undir merkjum verkefnisins er nú kominn í […]

Omar Sowe yfirgefur ÍBV

Knattspyrnumaðurinn Omar Sowe hefur yfirgefið ÍBV og skrifar undir þriggja ára samning við KR. Sowe er 26 ára gamall og hefur leikið með Breiðabliki, Leikni og ÍBV hér á landi. Alls hefur hann skorað 52 mörk í 109 leikjum. Hann kom fyrst til Íslands árið 2022 og varð þá Íslandsmeistari með Breiðabliki undir stjórn Óskars […]

Jólagleði í skókassa til Úkraínu

Tekið er á móti jólagjöfum fyrir verkefnið „Jól í skókassa“ í Landakirkju. Skókassarnir verða sendir til barna í Úkraínu og er síðasti skiladagur föstudagurinn 30. október. Einnig er hægt að skila þeim beint til Flytjanda. Í færslu á Facebook-síðu Landakirkju kemur fram að „Jól í skókassa“ sé alþjóðlegt verkefni þar sem börn og fullorðnir gleðja […]

Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi

Reynslan af því að fylgja fimm börnum í gegnum skólakerfið, bæði hér heima og erlendis, varð til þess að Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66°Norður fór að velta skólamálum fyrir sér af meiri alvöru. Síðar kynntist hann Hermundi Sigmundssyni, hugmyndasmið Kveikjum neistann, og fann þar hugmyndir sem féllu vel að þeirri reynslu sem hann hafði sjálfur […]

Hafsteinn Þórólfsson syngur eyjaperlur í Eldheimum

Söngvarinn Hafsteinn Þórólfsson kemur fram á tónleikum í Eldheimum föstudaginn 30. október klukkan 20.30, á Safnahelgi í Vestmannaeyjum. Þar flytur hann valdar eyjaperlur og fleiri falleg lög við undirleik Einars Scheving, Magnúsar R. Einarssonar og Þóris Ólafssonar. Hafsteinn á að baki yfir tuttugu ára feril sem atvinnutónlistarmaður og hefur fengist við fjölbreyttar tónlistarstefnur, bæði sem […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.