Knattspyrnumaðurinn Omar Sowe hefur yfirgefið ÍBV og skrifar undir þriggja ára samning við KR.
Sowe er 26 ára gamall og hefur leikið með Breiðabliki, Leikni og ÍBV hér á landi. Alls hefur hann skorað 52 mörk í 109 leikjum.
Hann kom fyrst til Íslands árið 2022 og varð þá Íslandsmeistari með Breiðabliki undir stjórn Óskars Hrafns Þorvaldssonar, sem nú stýrir KR. Sowe er uppalinn hjá New York Red Bulls í Bandaríkjunum.
Sowe skoraði sex mörk í 16 leikjum með ÍBV í Bestu deildinni á nýliðnu tímabili. Tímabilið þar á undan skoraði hann fjögur mörk í 12 leikjum áður en hann varð fyrir því óláni að slíta krossband í hné.