Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Tekið á móti skókössum í Landakirkju til 30. október
Verkefnið er fallegt tækifæri til að sýna kærleik í verki og minna okkur á að jólin snúast ekki síst um að gleðja aðra. Ljósmynd/aðsend

Tekið er á móti jólagjöfum fyrir verkefnið „Jól í skókassa“ í Landakirkju. Skókassarnir verða sendir til barna í Úkraínu og er síðasti skiladagur föstudagurinn 30. október. Einnig er hægt að skila þeim beint til Flytjanda.

Í færslu á Facebook-síðu Landakirkju kemur fram að „Jól í skókassa“ sé alþjóðlegt verkefni þar sem börn og fullorðnir gleðja börn sem búa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með jólagjöfum. Markmiðið sé að sýna þeim kærleik Guðs í verki.

Gjafirnar eru settar í skókassa og er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa svo börnin fái sambærilegar jólagjafir.

Samkvæmt færslunni ríkir mikil örbirgð á svæðinu í Úkraínu þar sem gjöfunum verður dreift. Íslensku skókössunum verður meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili og barnaspítala, auk þess sem þeir verða færðir börnum einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt.

Aðalskipuleggjandi dreifingarinnar í Úkraínu er faðir Evheniy Zhabkovskiy. Hann starfar með KFUM þar í landi og hefur aðstoðað sjálfboðaliða KFUM og KFUK þegar þeir hafa farið með gjafirnar til Úkraínu. Hann hefur einnig heimsótt Ísland og kynnt sér starf samtakanna hér.

Tengiliður verkefnisins er Trausti Mar Sigurðsson í síma 823-5998.

Nýjustu fréttir

Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Hafsteinn Þórólfsson syngur eyjaperlur í Eldheimum
Allison Clark í úrvalsliði Bestu deildar kvenna hjá Fótbolta.net
Blásið til sóknar í tónlistinni
Jón Þór vill yfirferð á verklagi eftir úrskurðina
Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst í nóvember
Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.