
Jón Þór Guðjónsson, oddviti Miðflokksins í Vestmannaeyjum, telur sjálfsagt að farið verði yfir verklag Vestmannaeyjabæjar í ljósi þriggja úrskurða innviðaráðuneytisins vegna ólögmætra uppsagna starfsmanna sveitarfélagsins.
Hann telur jafnframt að kjörnir fulltrúar og almenningur eigi að fá upplýsingar um niðurstöður slíkrar yfirferðar og mögulegar úrbætur, að því marki sem trúnaður leyfir.
Þetta kemur fram í nýju svari Jóns Þórs til Eyjafrétta. Hann hafði áður svarað fyrirspurn blaðsins með þeim orðum að hann gæti að svo stöddu ekki tjáð sig um trúnaðarmál.
Eftir að Eyjafréttir birtu í dag svör oddvita flokkanna í bæjarstjórn hafði Jón Þór samband og sagðist hafa lesið fyrirspurn blaðsins ranglega.
„Ég sá fréttina hjá þér í dag með svörunum og áttaði mig á því að ég hafði greinilega lesið fyrirspurnina þína rækilega vitlaust. Ég taldi mig ekki mega tjá mig um þessi mál að svo stöddu vegna trúnaðar,“ segir Jón Þór.
Í fyrirspurn Eyjafrétta var tekið fram að ekki væri óskað eftir upplýsingum um persónuleg málefni starfsmannanna eða öðrum atriðum sem gætu orðið til þess að bera kennsl á þá.
Fram kom að spurningarnar lytu að pólitískri ábyrgð, eftirlitshlutverki bæjarstjórnar og stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Jón Þór bendir á að starfsmannamálin sjálf hafi komið upp á fyrra kjörtímabili en úrskurðirnir fallið á yfirstandandi kjörtímabili.
Hann segist því ekki þekkja alla málavexti nægilega vel til að leggja sjálfstætt mat á einstakar ákvarðanir. Kjörnir fulltrúar hafi þó verið upplýstir um stöðu málanna og eftir því sem hann best viti séu þau enn í vinnslu.
„Miðað við þær upplýsingar sem ég hef fengið hef ég ekki ástæðu til að ætla annað en að þeir sem komu að málunum hafi talið sig vera að vinna eftir réttu verklagi. Það breytir þó ekki því að taka þarf niðurstöður ráðuneytisins alvarlega,“ segir Jón Þór.
Jón Þór gagnrýnir jafnframt almennt regluverk um starfsmannamál hins opinbera, sem hann telur orðið of þungt og ósveigjanlegt.
„Það getur verið óeðlilega erfitt fyrir sveitarfélög að bregðast við þegar starfsmenn sinna ekki skyldum sínum eða málefnalegar ástæður eru fyrir starfslokum. Réttindi starfsmanna eru mikilvæg, en þau mega ekki verða til þess að atvinnurekendur standi ráðþrota gagnvart erfiðum starfsmannamálum. Þarna þarf betra jafnvægi og meira samræmi við almennan vinnumarkað,“ segir hann.
Jón Þór tekur sérstaklega fram að þessi gagnrýni hans sé almenn og snúi ekki að þeim einstaklingum sem úrskurðirnir þrír varða.
„Lögum ber að fylgja, en það þýðir ekki að ekki megi gagnrýna þau.“
Jón Þór telur sjálfsagt að verklag Vestmannaeyjabæjar verði tekið til skoðunar í ljósi niðurstaðna ráðuneytisins.
„Ég tel sjálfsagt að fara yfir verklagið í ljósi úrskurðanna og skoða hvað megi betur fara. Kjörnir fulltrúar og almenningur eiga að fá upplýsingar um niðurstöður og mögulegar úrbætur, eftir því sem trúnaður leyfir.“
Hann tekur þó ekki afstöðu að svo stöddu til þess hvort Vestmannaeyjabær eigi að bera niðurstöður ráðuneytisins undir dómstóla.
„Hvað mögulega dómsmeðferð varðar tel ég rétt að bíða eftir frekara mati áður en tekin er afstaða til hennar,“ segir Jón Þór.
Fyrri frétt um málið:
Eyþór Harðarson telur ekki þörf á óháðri úttekt á verklagi Vestmannaeyjabæjar þótt innviðaráðuneytið hafi úrskurðað þrjár uppsagnir starfsmanna sveitarfélagsins ólögmætar á skömmum tíma. Oddvitar Eyjalistans og Miðflokksins svöruðu spurningum Eyjafrétta ekki efnislega og vísuðu til trúnaðar. Eyjafréttir óskuðu eftir afstöðu oddvita flokkanna í bæjarstjórn Vestmannaeyja til stjórnsýslulegrar og pólitískrar eftirfylgni úrskurðanna þriggja. Spurningarnar lutu meðal […]